þriðjudagur, október 31, 2006

Loksins nettengdur

Ég hringdi loksins í netfyrirtækið eftir að hafa beðið eftir nettengingu frá þeim í þrjár vikur. Þá var mér sagt að það væri ekki laus lína í húsið mitt og að ég yrði að fá mér fasta símalínu hjá öðru fyrirtæki og hafa svo samband við þá aftur. Þvílíkt og annað eins rugl. Mér datt ekki til hugar að reyna að eiga viðskipti við þá aftur heldur hringdi í annað fyrirtæki sem reddaði nettengingunni á 10 mínútum...

sunnudagur, október 29, 2006

Afmælisbarnið

Afmælisbarn gærdagsins var Kristmundur Guðmundsson sem er einnig nýbakaður meistari í verkfræðum. Hann hélt stórglæsilega veislu á heimili sínu í Gautaborg. Ég var svo heppin að vera viðstaddur veislu þessa og þakka honum fyrir gestrisnina.

miðvikudagur, október 18, 2006

Mike Stern

Sá gítarleikarann Mike Stern á sunnudagskvöldið á Nefertiti. Hann er með nákvæmlega sama sánd, sömu hárgreiðslu og í sömu fötunum og fyrir 20 árum síðan. Hafði samt alveg gaman af fyrstu 10 mínútunum.

Annars hef ég verið í litlu netsambandi undanfarið þar sem það tekur u.þ.b. þrjár vikur að fá nýja internettengingu hér í Svíþjóð. Fyrir utan það að það er meiriháttar mál að finna kaffihús sem er með þráðlaust net.

miðvikudagur, október 04, 2006

Íslandsförin

Laser elskar Ísland, alla vini mína og sérstaklega foreldra mína sem dekruðu við okkur allan tíman. Takk fyrir móttökurnar öll sömul!!!