þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Svíþjóð hér kem ég!

Á morgun fer í ég í heimsókn til Svíþjóðar í fyrsta skipti eftir að ég kom til Ítalíu. Mikið tilhlökkunarefni.

Þar er auðvitað Lína sem mig hlakkar mig til að sjá. Er þetta lengsta tímabil sem við höfum verið fjarri hvort öðru. Hefur samt gengið vonum framar og ekki hægt að segja annað en að við séum bara nokkuð góð í þessu.

Í Gautaborg einnig mikið af góðu fólki og góðum vinum sem mig hlakkar til að hitta.
Einnig kem ég til með að vinna með nýju bandi sem samanstendur af norska trommuleikaranum Öyvind og svissneska bassaleikaranum Kasper. Stendur til að æfa nýtt efni sem þeir félagar hafa verið að undirbúa og svo verður keyrt á tónleikaferð í Sviss næstkomandi september.

mánudagur, febrúar 11, 2008

Úr eldhúsinu

Hef verið að prófa mig dálítið áfram með eldamennsku að ítölskum hætti.

Uppáhaldsrétturinn þessa dagana:

Þunnsneitt nautakjöt með Balsam ediki.

Kjötið er léttsteikt á pönnu, bætt við balsam ediki, feskri rósmarín og hvítlauk.
Balsam edikinu er helt yfir kjötið áður en það er borið fram og það loks saltað og piprað eftir smekk.

Þessi dýrendis réttur er ekki óætari en það að hann hefur verið í matin á mínu heimili þrjá daga í röð. Ágætis Atkins kúr ef það væri ekki fyrir allt pastað.

Að ítöslkum hætti þá er byrjað á salatinu sem forrétti. Til að fullkomna salatið er góð dressing sem er blanda af ólífu olíu, balsam ediki og hunangi. Því á eftir fylgir svo pasta með hökkuðum tómötum og loks kjötið sem annar réttur.

Að því loknu má svo ekki gleyma að fullkomna máltíðina með "dolce" og bolla af espresso.


Bara svona smá innsýn inn í daglegt líf okkar Ítala.

Ciao...

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Lífið á Ítalíu!

Verð að viðurkenna að mikil bloggleti hefur verið í gangi. Það er eins gott að ég skrifi eina færslu snarlega svo þetta deyi nú ekki algjörlega út.

Fyrst má nefna það að síðustu viku hef ég fengið tvær góðar heimsóknir. Fyrst kom Tryggvi og svo kom Pauli. Þetta var gott tækifæri til að prófa nokkra veitingastaði, fara út á lífið og taka túristapakkann í Perugia. Óhætt að segja að hvorki ég né mínir gestir hafi verið fyrir vonbrigðum.
Frábær matur og vín og margt að sjá. Má þar nefna minjar frá Etrúskum sem er frá því fyrir Krist, minjar frá Rómverjum og byggingar frá miðöldum sem eru í meirihluta í miðbæ Perugia.

Fyrstu þrír mánuðirnir hafa farið í að læra ítölskuna. Ég ákvað að taka þetta föstum tökum í byrjun og tók tvo mánuði í ítölskunámskeið. Ekki hefur gefist tími fyrir margt annað en núna hef ég lagt niður enskuna hér og get spjallað þokkalega um daginn og veginn á ítölsku. Til að lyfta mér upp horfi ég gjarnan á ítalskar bíómyndir.

Svo er það stefnan sem í hef tekið í tónlistarnáminu hér en ég ætla að fara betur út í það síðar...