miðvikudagur, júní 27, 2007
Kenya
Spila annað kvöld á Gauki á Stöng með söngkonunni Kenya. Á myspace síðunni hennar er hægt að prenta út boðsmiða á tónleikana. Einstakt tækifæri til að sjá mig í brjálæðislegri R&B sveiflu. Húsið opnar kl. 20.00.
sunnudagur, júní 24, 2007
Helgin
Var að koma úr skemmtilegri útilegu. Eina helgin í sumar sem Lína hefur verið í fríi þannig að við skelltum okkur út úr bænum á húsbílnum hans pabba. Fórum í Skaftafell á förstudaginn og eyddum kvöldinu þar í rólegheitum. Vöknuðum svo við sólina í blíðskapar veðri snemma næstu dag. Fórum m.a. í göngutúr um Skaptafell og keyrðum að jökulsárlóni. Um kvöldið hittum við svo vini okkar sem einnig eru í ástandinu, þ.e. meira og minna með erlenda maka. Ingu og Jo, Söndru og Alex, Steinunni ásamt Ítölskum kærasta sínum. Treysti mér ekki til að reyna að skrifa nafnið hans. Síðan vor einnig þrír herramenn með í för, þeir Tryggvi, Egill og Dagur. Áttum við frábært kvöld með grilli, söng og öllu tilheyrandi. Takk fyrir ferðina krakkar!
Læt hér fylgja með þessari færslu mynd sem Sigurdór gróf upp af djammsessjón 2004 þar sem ég er í hörku fíling ásamt Agli Ólafssyni og Davíð Þór.
Læt hér fylgja með þessari færslu mynd sem Sigurdór gróf upp af djammsessjón 2004 þar sem ég er í hörku fíling ásamt Agli Ólafssyni og Davíð Þór.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)