laugardagur, mars 31, 2007
föstudagur, mars 30, 2007
laugardagur, mars 24, 2007
Gautaborg - Oslo - Gautaborg
Fór til Osló í gærmorgun. Æfing með Laser og tónleikar um kvöldið. Heppnuðust bara mjög vel og var gaman að koma saman eftir tveggja mánaða pásu. Fín upphitun fyrir Eistlands/Finlands túrinn í maí. Eftir tvær vikur fer í ég í viku frí til Ítalíu með kærustunni. Jíbbí!!!!!!! Kærkomið frí eftir hörku dugnað á nýju ári. Gæti haft fleiri skemmtilegar fréttir að færa í sambandi við Ítalíu. En ekki alveg strax...
laugardagur, mars 10, 2007
Tallinn
Kom heim eftir frábæra ferð með bekknum til Tallinn. Það var tekið alveg einstaklega vel á móti okkur, við keyrð á milli staða, boðið upp á þrjár máltíðir á dag o.s.fr. Spiluðum á þrennum tónleikum sem voru hluti af einhversskonar ungjazz hátíð. Troðfullt hús var á síðustu tónleikunum sem voru á jazzklúbbnum. Það virðist vera mikill áhugi fyrir jazzi í Tallinn og tók ég eftir því að meiri hluti áhorfenda var frekar ungt fólk. Stefnt er svo á ferð með Laser til Eistlands í maí...
sunnudagur, mars 04, 2007
Hvítlaukur og engifer
Nú er ég búina að borða fullt af hráum hvítlauk og elda mér súpu með fullt af engiferi svo það er eins gott að ég verði orðin frískur á morgun. Á morgun á ég að fara í gítartíma hjá Mattias Windemo og langa æfingu fyrir komandi Eistlandsferð. Um er að ræða ferð með bekknum mínum til Tallinn á miðvikudaginn. Þar verður heimsóttur tónlistarskólinn, spilaðir nokkrir tónleikar og kæmi mér ekki á óvart þó að einhverjum dytti í hug að bragða á eistneskum vodka...
föstudagur, mars 02, 2007
Heima veikur
Nú hef ég ekkert verið í sérstaklega blogg stuði að undanförnu en fyrst ég hangi nú heima veikur er eins gott að skrifa eitthvað.
Síðasta vika hefur farið í að spila undir hjá taugaveikluðum umsækjendum í tónlistarskólanum. Á mánudaginn spilaði ég undir hjá trommurum, þriðjudag í annari umferð hjá bassaleikurum og trommurum og á miðvikudaginn hjá blásurum. Eftir þessa þriggja daga geðveiki varð ég svo veikur og kom það mér ekki á óvart. Er hins vegar allur að hressast eftir Friends maraþon og súkkulaðiát.
Merkilegt þótti með þessi inntökupróf að standardinn hefur sjaldan verið lægri. Samt er gríðalega stór hópur fólk sem vill leggja fyrir sig hljóðfæraleik eða aðrir listir án þess að vilja leggja allt of mikið á sig. Má nefna sem dæmi að yfir 500 umsækjendur voru í leiklistardeildina og 150 í söng.
Svo er engin sem sker sig út úr með því að vera með eitthvað nýtt og ferskt lag heldur eru allir með sömu gömlu jazzlummurnar. Vinsælustu lögin voru Footprints, Straigh no Chaser og Nardis.
Heimur versnandi fer!!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)