fimmtudagur, janúar 18, 2007

Nú er rúmlega vika síðan ég kom aftur til Gautaborgar eftir frábært jólafrí hjá foreldrum mínum á Íslandi. Ég fékk góða gesti í heimsókn til mín þegar ég var á Íslandi. Lína kærasta mín og svo Moritz sem er þýskur vinur minn. Þau voru hæst ánægð með heimsóknina enda stöðug veisla heima. Stórkostlegur matur á hverju kvöldi, stærsta flugelda sýning sem þau höfðu nokkrun tíman séð og norðurljós.

Nýtt ár byrjar vel. Endurnýjaði kortið í ræktinni og fer þrisvar í viku. Vakna tiltölulega snemma og fer niðrí skóla að æfa mig. Nú er bara að halda rútínunni. Á morgun kemur í Jo til Gautaborgar og verður tekin stíf æfingarhelgi með Laser.