fimmtudagur, september 29, 2005

Ég fekk gigg!

Vei!! Fyrstu giggin eru í höfn. Ég mun spila í messu fyrir Íslensku kirkjuna í Osló þann 6. nóvember. Sérstaklega ánægjulegt þar sem bróðir minn býr þar og ég get því heimsótt hann í leiðinni. Svo mun ég einnig spila á listasafni sem heitir Röhska Museum þann 22. október með jazztríói. Vonandi er þetta það sem koma skal...

Annars mætir Tryggvi Lárusson, æskuvinur minn, til Gautaborgar á morgun. Hann kemur um þrjú leitið og verður dreginn beint á After work. Síðan verður haldið á Tyghusvägen þar sem við Sandra stöndum fyrir rosalegu innflutningspartí. Svo ætla ég að fara með drenginn í skoðunarferð á laugardaginn. Það verður eflaust farið í smá siglingu og kíkt í Liseberg. Allavega mjög skemmtileg helgi framundan.

mánudagur, september 26, 2005

Innflutningsparti ofl.

Um helgina var m.a. annars innflutningspartí hjá Önnu bekkjarsystur minni. Þrusu stemmning. Smellið hér til að skoða myndir.

Skólinn gengur sinn vanagang. Byrja í nýju samspili í næstu viku hjá Peter Burman þar sem unnið verður með rhytma. Næstu helgi verður svo innflutningspartí hjá okkur. Þar verður íslenskur leynigestur sem kemur auðvitað sérstaklega til að ná þessu partí...

föstudagur, september 23, 2005

fimmtudagur, september 22, 2005

Ég er í hljómsveit!

Í kvöld var æfing með hljómsveitinni. Í henni er Pauli (Finnland), Jo (Noregi) og Hjalmar (Svíþjóð) sem leysir af Andreas sem er í einhverju verkefni í Úkraínu (eða var það Ungverjaland???) sem stendur. Hér má líta á þessa myndarlegu ungu menn.



Æfingin gekk rosalega vel. Spiluðum Vitlök með Siggi sem er alveg rosalega fyndið lag. Verð að leyfa ykkur að heyra það síðar. Annars bendi ég bara nóturnar sem finna má neðar á síðunni.

miðvikudagur, september 21, 2005

Æfa, æfa, æfa!!!

Lesendur góðir. Ég hef ekki verið nógu duglegur að blogga undanfarið. Ég hef komið frekar seint heim á kvöldin og þá nenni ég því ekki. Annars gengur bara mjög vel hérna í Gautaborg. Ég er að komst vel í gang og búin að vera duglegur að æfa mig undanfarið. Ég er eiginleg mest búin að æfa mig á píanóið. Mig langar til að getað notað það til að semja. Svosem búin að vera að semja eitt og eitt lag og spila með hinum og þessum. Í kvöld eru svo tóneikar á Brötz...

sunnudagur, september 18, 2005

Vitlök med Siggi!

Maður vikunnar!

Ég hef ákveðið að þessu sinni að velja mann vikunnar og er það engin annar en finnski skiptineminn Pauli Lyytinen. Þennan heiður fær hann fyrir að hafa ótrúlega hvetjandi áhrif á mig. Hann æfir sig 8-12 klukkustundir á hverjum degi og semur í leiðinni 2-3 lög. Það er honum að þakka að í dag æfði ég mig frá tvö til miðnættis.



Þetta er annars búin að vera frábær helgi. Fór í partí í gær og afrekaði það að borða hálfan ferskan hvítlauk. Mæli ekki með því, það var ótrúlega vont. Fékk geðveikan verk í eyrun og í magann á eftir. Hvað kom til? Jú þetta byrjaði þannig að Moritz var eitthvað að mana mig í einhverskonar keppni. Venjulegum lauk var skipt í tvennt og svo áttum við að borða hann án þess að tárast. Við gerðum það báðir með léttum leik. Síðan var einhver sem skipti hvítlauk í tennt. Við tókum báðir við honum en horfðum bara hvor á annan. Hvorugur okkar var tilbúin til að taka af skarið. Þá reif Pauli hvítlaukin af Moritz og skellti honum í sig. Ég gat auðvitað ekki verið minni maður og lék sama leik. Ekki reyna þetta heima krakkar mínir.
Í dag samdi Pauli lagið Vitlök með Siggi...

fimmtudagur, september 15, 2005

Hvað er að gerast!

Á þriðjudaginn fórum við Sandra í bæinn með íslenska parinu í húsinu okkar. Þau heita Elín og Ragnar og eru mjög hress.

Hér má sjá mynd af þeim eftir bæjarferðina.


Á miðvikudaginn fórum við með Krissa á tónleika með þessum manni. Hann heitir Charles McPherson og spilar á saxófón. Ég tók ansi margar myndir af honum en hann virðist bara ekki geta verið í fókus.



Í gær gerðist sá undarlegi hlutar að klukkan eitt um nóttina hringdi í mig ung stúlka úr skólanum í miklu uppnámi. Afleiðingin var sú að þegar Sandra vaknaði í morgun svaf stúlkan í svefnsófanum hjá okkur. Hvað get ég sagt, það er gott að leita til mín á erfiðum tímum. Ég hef ekki enn komist að því hvað amaði að greyið stúlkunni eða hvers vegna hún leitaði til mín.

Á morgun verður svo farið á After work. Þýskur skiptinemi í skólanum á afmæli. Myndir birtar síðar...

miðvikudagur, september 14, 2005

Klukk, ég er'ann!!!

1.Fæddist í Reykjavík 30. nóvember 1980 á sunnudegi kl. 11.00 þegar kirkjuklukkurnar hringdu.

2. Uppáhaldsmaturinn minn er nautafille, léttsteikt auðvitað.

3. Fyrsta hljómsveitin sem ég var í hét Svart og hvítt. Hljómsveitin var stofnuð af Elmari og tveimur félögum hans. Mér þótti þetta mikill heiður þar sem ég var tveimur árum yngri en þeir og var boðið pláss í hljómsveitinni þar sem ég kunni laglínuna í Poplag í G-dúr.

4. Ég stúdera gítarleik og annað tónlistartengt í Gautaborgarháskóla. Ég er búin að vera að spila á gítar meira og minna í 14 ár. Síðustu ár hef ég ekki verið í nokkrum vafa um hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór.

5. Ég er örverpi og er ánægður með það. Ég á tvö frábær eldri systkyni sem ég get ávalt leitað til. Ingólfur (31) er læknir og er í sérnámi í næstu stórborg, Osló. Anna (34) býr í Luxemburg og rekur þar stórheimili auk þess að vera mjög virk í félagslífinu. Það verður ekki sagt of oft hversu mikið ég lít upp til þeirra beggja.


Ég klukka Steina, Nóa, Wufnik , Fríðu og Elmar.

þriðjudagur, september 13, 2005

Kirkjunar störf

Næstu helgi hefjum við störf okkar hjá íslensku kirkjunni í Gautaborg. Um er að ræða annars vegar að stjórna íslenskum barnakór og hins vegar að hjálpa til í kirkjuskólanum við undirspil og annað. Ég fór í dag og fjárfesti í kassagítar fyrir kirkjuna sem ég kem til með að nota þar. Í tilefni dagsins birti ég hér mynd af gítarnum og hljóðdæmi . Það er tekið upp í eldhúsinu mínu með innbyggða hljóðnemanum á makkanum mínum. Ef vel er hlustað má heyra tölvuna mala og ýmis önnur aukahljóð...

sunnudagur, september 11, 2005

Líf og fjör i Kaupmannahöfn

Í gær var ég í kaupmannahöfn á kynningu á íslensku efni fyrir kirkjuskólann. Eins og þið vitið kannski ekki þá erum við Sandra að taka við íslenskum barnakór í Gautaborg og aðstoða í kirkjuskólanum. Svo var auðvitað farið út að borða með liðinu. Fyrsta skipti sem ég hef farið á djammið með prestum. Ég get sagt ykkur það að þeir gefa sko ekkert eftir þegar það kemur að næturlífinu. Í kvöld voru Pauli frá Finnlandi og Jo frá Noregi í mat hjá okkur. Boðið var upp á risotto og kjúkling og
espresso og súkkulaði í eftirrétt. Mycket roligt!!!

fimmtudagur, september 08, 2005

Sofnaði á Brötz

Skemmtilegt kvöld í gær. Krissi kom í mat til okkar. Alltaf ánægður að koma í pössun á Tyghusvägen. Síðan fór ég með strákinn á tónleika á Brötz. Hljómsveit húsins hóf leikinn og svo var aðalnúmerið tríó sem samanstóð af trompetleikara, gítarleikara og trommuleikara. Þetta greip mig ekki betur en það að mér tókst að sofna á miðjum tónleikunum. Var eitthvað óvenju þreyttur. Kannski að bjórinn og rauðvínið hafi haft einhver áhrif, ég skal ekki segja. Ég var miður mín yfir þessu atviki og skammaðist mín. Krissi sagði hins vegar að það hafi litið út fyrir að ég væri að hlusta af mikilli innlifun. Þarna slapp ég fyrir horn...

þriðjudagur, september 06, 2005

A day in a life!!!

Hér gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með heilum degi í lífi Sigga

Sætur og fínn!

Ný komin úr klippingu. Hárið á mér var að sjálfsögðu blásið að sænskum stíl. Taka verður fram að ekki var beðið sérstaklega um þá þjónustu.

sunnudagur, september 04, 2005

A weekend in Oslo!!!

Á fimmtudaginn fór ég að heimsækja bróður minn og fjölskyldu í Osló. Ég fór með rútu sem var bara ágætt, rúmgóð sæti og ekki nema þrjá tíma og fjörtíu mínútur á leiðinni. Þegar ég kom um til þeirra um kvöldið, svangur og einmanna, beið mín 200 gr. hamborgari. Ég verða að viðurkenna að hann toppaði Nettó borgarann. Helgin var annars mjög ljúf. Við röltum mikið um bæinn með krökkunum, skoðuðum hitt og þetta, drukkum gott kaffi og borðuðum fleiri hamborgara. Síðan elduðu þau hverja dýrindis máltíðina á fætur annari. Halla og Röngvaldur, frændsystkyni mín, voru í miklu stuði. Þau voru með stanslaus skemmtiatriði fyrir mig og gott ef þau halda bara ekki svolítið upp á frænda sinn. Ég skemmti mér allavega konunglega. Eitt er öruggt að ég kem ekki léttari heim úr þessari ferð. Nú fer ég að taka fram skokk skóna...

Ég læt myndirnar tala sínu máli!

fimmtudagur, september 01, 2005

Tónleikar á Brötz

Í gær fóru ég á ansi skemmtilegan tónleikastað sem heitir Brötz. Hann gefur sig út fyrir að vera aðalega free jazz staður en það er svosem ýmislegt spilað þar. Hilmar Jensson spilaði þar í fyrra með tríóinu sínu. Í gær sá ég ansi magnaðan dúett með trommuleikara og söngkonu sem er meira að segja par sem skemmir auðvitað ekki fyrir. Þetta kom rosalega vel út hjá þeim, alveg stórskemmtilegt. Eftir tónleikana fórum við svo nokkur á pöbb. Þar á meðal félagi minn Pauli, sem er finnskur skiptinemi. Hann er búin að biðja mig um að vera með sér í free hljómsveit ásamt norskum skiptinema frá Osló sem heitir Jo og trommuleikaranum sem lék á þessum tónleikum sem heitir Andreas. Hér er því um samnorræna hljómsveit að ræða. Pauli vill svo endilega að við förum til Finnlands og spilum nokkra tónleika þar. Örugglega mjög gaman ef af því verður. Eins og sannur Finni þá var Pauli mjög öflugur í drykkjunni. Hann pantaði gjarnan tvo bjóra í einu og var helmingi fljótari að drekka en við hin fyrir utan það að hann var greinilega búin að skjóta á sig þegar ég hitti hann fyrir tónleikana. Kvöldið endaði svo þannig að ég var einn eftir með honum og var svo ekki komin heim fyrr en klukkan þrjú. Var svo auðvitað að deyja úr þreytu í skólanum í morgun...

En nú fer ég að leggja í hann til Osló til að heimsækja minn kæra bróðir.
Bless í bili...