sunnudagur, júlí 31, 2005
Malus á Hressó í kvöld
Ég hvet alla sem eru í bænum og verða ekki á innipúkanum að kíkja á okkur. Við byrjum að spila rúmlega tíu og munum halda uppi fjörinu til eitt í nótt. Við verðum einnig á Rósenberg fimmtudaginn 11. ágúst.
laugardagur, júlí 30, 2005
Lokatónleikar Autoreverse
miðvikudagur, júlí 27, 2005
20 days until: Gautaborg
segir countdown calenderið mitt sem er hluti af Dashboard sem notender Tiger, nýjasta stýrikerfis apple, ættu að kannast við. Í kvöld fórum við Sandra semsagt að hitta Þóru nokkra Marteinsdóttur sem stundað hefur nám í Musikhögskolan vid Göteborgs Universitet. Þaðan var hún að útskrifast í vor með mastersgráðu í tónsmíðum og er því ný flutt heim. Ástæðan fyrir því að við hittum hana er fyrst og fremst sú að við höfum tekið að okkur að stjórna íslenskum barnakór sem starfræktur er í Gautaborg á vegum íslensku kirkjunnar. Þóra hefur stjórnað honum síðastliðin ár. Hún þekkir vel til eftir fjögura ára búsetu og gat gefið okkur ýmis góð ráð. Að hennar sögn er mjög góð stemmning í skólanum og þá sérstaklega í afro deildinni sem við Sandra erum að fara í. Hún sagði okkur meðal annars frá krá sem heitir Stagedoor og er viðverustaður nemanda tónlistarskólans og leiklistarskólans. Mælti hún sérstaklega með því að við værum dugleg að sækja hana til að byrja með. Það myndi hjálpa okkur að kynnast fólk og æfa okkur í sænskunni. Nemendur eru víst duglegir að sækja hana og fá sér öl. Þetta hljómar alls ekki illa og ekki laust við að mér sé farið að hlakka til...
Ég læt hér fylgja mynd af garði sem er í skólanum þar sem nemendur slaka gjarnan á í hléum.
Ég læt hér fylgja mynd af garði sem er í skólanum þar sem nemendur slaka gjarnan á í hléum.
þriðjudagur, júlí 26, 2005
Notalegt kvöld...

í gærkvöldi fór ég með Söndru og Emilíu, 10 ára frænku minni, í bíó. Við fórum á hina mögnuðu mynd The Perfect Man. Þar fara þær Hillary Duff og Heather Locklear á kostum, ekki að spyrja að því. Ég veit ekki betur en að Heather sé gift gítarleikaranum Richie Sambora sem leikur með amerísku léttrokksveitinni Bon Jovi. Það er ótrúlegt hvað þessir gítarleikarar eru alltaf með fallegum dömum.
Kvöldið endaði svo á Stúdentakjallaranum þar sem ég settist niður yfir öl með Wufnik sjálfum. Það endaði svo með því að hann lánaði mér hljólið sitt svo ég gæti komist heim. Í tilefni af því fær hann link hér á kantinn...
mánudagur, júlí 25, 2005
Fjölskyldubilinn!
Jæja, þá er gamli góði Suzuki bíllinn minn komin á sölu. Hann hefur reynst mér vel blessaður. Þeir hjá JR Bílum voru svo vinsamlegir að taka við honum. Það var reyndar allt fullt hjá þeim en þeim leist bara svo vel á gripinn. Hann er nú á tilboðsverði á aðeins 350 þúsund. Áhugasamir hafið samband við JR Bílasöluna, Bíldshöfða 3.
Tjutt...
Í gær var farið á smá djamm með geimveirunni, snerlinum og fleirum. Þetta var þó merkilegt að því leiti að þetta var jómfrúardjamm mitt með Gumma Pííííí!. Skemmtilegur maður og frábær gítarleikari. Lengi var reynt að hafa upp á Bananum en án árangurs. Ekki var þó skortur á gítarleikurum því hinir ungu django meistarar Gunni og Hjörtur voru á svæðinu. Ekki var amalegt að hlusta á þá félaga spila.
Frábært kvöld...
Frábært kvöld...
Fyrsta bloggið
Vegna fjölda áskoranna ætla ég að gera smá tilraun með að blogga. Sérstaklega þar sem ég er að flytja til útlanda og fáeinum gæti þótt skemmtilegt að fá að fylgjast aðeins með ævintýrum mínum í framandi landi. Ég held þó að merking þess sem ég segi skili sér heldur betur ef ég segi þau í eigin persónu þó vissulega geti verið erfitt að skilja mig.
Ég ætla samt að reyna...
Ég ætla samt að reyna...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
