fimmtudagur, maí 31, 2007
GÍS
Fór og náði í dagskrá sumarsins í GÍS í dag og það lítur út fyrir að það verða mikið uppgrip hjá mér. Þegar komin með 20 nemendur sem mæta tvisvar sinnum í viku. Þetta mun þýða að ég verð að kenna frá 12 til 21 mánudag til föstudag. Auglýsi hér með eftir aukavinnu handa Línu. Hún er búin að vinna kl. 16 alla daga og vill aukavinnu milli 17 og 20. Allar hugmyndir vel þegnar.
miðvikudagur, maí 30, 2007
Mættur til landsins!
Var að koma til Íslands með beinu flugi frá Gautaborg. Algjör lúxux. Verða hér á landi ásamt kærustunni í júní og eitthvað fram í júlí. Ég verð að kenna á gítarnámskeiði hjá GÍS eing og vanalega. Loksins getur maður slakað á eftir að hafa pakkað og komið fyrir öllu dótinu mínu þar sem ég var að flytja úr núverandi íbúð. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að ég muni flytja til Ítalíu í haust og vera skiptinemi í Perugia. Er ekkert smá spenntur fyrir því að flytja suður í sæluna.
mánudagur, maí 07, 2007
Laser is back
Á morgun legg ég í hann til Eistland með Laser. Þetta verður þokkalegt ferðalag því að við förum með bíl og tökum bátinn frá Stokkhólmi til Tallinn. Við spilum síðan tvenna tónleika þar. Það er mikil stemmning fyrir jazztónlist í Eistlandi og mikið af ungu fólki sem mætir á tónleika. Þetta er í annað sinn sem ég fer til Eistlands að spila á árinu og þegar er búið að skipuleggja stærri tónleikaferð með Laser þangað í haust.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)