þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Verðkönnun

Ég var rétt í þessu að versla í Netto hér í Gautaborg og var svona líka rosalega ánægður með verðið. Ég veit að margir hafa mikin áhuga á verðsamanburði og því ætla ég að gera grein fyrir verðinu í Nettó. Til þess nota ég hina þekktu og nákvæmu PPB einingu, þ.e. price per bag. Ég réð ekkert við mig í þetta skiptið og endaði með að versló þrjá fulla innkaupapoka. Fyrir þetta borgaði ég aðeins 303 sænskar krónur sem eru 2511 miðað við núverandi gengi (8,287). Með PPB formúlunni og aðstoð reiknivélar fáum við út 837 PPB sem þykir nokkuð gott á alþjóða mælikvarða. En nú kunna margir að spyrja sig hvað Siggi borði eiginlega í útlöndum og því fáið þið smá dæmi:



Þessi 20 stk. af 90 gr. hamborgurum keypti ég á aðeins 67 sænskar eða 555 ISK. Verði ykkur að góðu...

mánudagur, ágúst 29, 2005

Varúð!!!

Vinsamlegast bendið mér á það ef þig takið eftir því að ég sé farinn að sökkva of djúpt í sænskan kúltúr.

Ef þið takið eftir eitthvað af eftirfarandi einkennum hafið þið skriflegt leyfi til að slá mig í rot:

1. Ef þið takið eftir því að ég sé farinn raka á mér lappirnar.
2. Ef þið takið eftir því að ég sé farinn að raka á mér bringuna.
3. Ef ég er skyndilega kominn með ljóst hár.
4. Ef ég er orðin massaður og geng í þröngum bleikum stuttermabol ( Ath. uppfylla þarf bæði skilyrði)
5. Ef efri vörin á mér virðist bólgin en er í rauninni full af skít.
6. Ef ég er farin að nota glæran maskara og meik.

sunnudagur, ágúst 28, 2005

Óvænt ánægja

Þegar ég var á leiðinni að æfa mig áðan pikkaði Joel saxófónleikari í mig og spurði mig hvort ég væri til í að djamma. Þetta var þó ekki Jóel Pálson heldur nemandi á öðru ári á musiker línunni. Svo voru einnig með trommuleikari og bassaleikari á þriðja ári og finnskur skiptinemi úr Síbelíusar Akademíunni í Finnlandi. Það var alveg geðveikt gaman að spila með þeim. Allir alveg fanta spilarar. Við spiluðum ýmsa standarda, engar nótur bara spilað. Ef ég kunni ekki lagið þá bara kenndu þeir mér það eða ég elti þangað til ég náði því. Það er því eins gott að fara að opna eyrun og hlusta.
Þetta lofar ekkert smá góðu, allir vilja spila grimmt. Þeir spiluðu á köflum svolítið öðruvísi en ég er vanur, þ.e. þeir fóru mjög frjálslega með lögin. Bassaleikarinn og trommarinn voru kannski báðir að spila einhverja rhythma ofan grunn taktinn þannig að maður þurfti algjörlega að vera með sitt á hreinu. Bassaleikarinn var þá kannski að spila línur í stað þess að gefa hljómana beint til kynna. Þetta hljómaði mjög kúl þótt ég hafi verið dálítið týndur til að byrja með. Við spiluðum m.a. Blue in Green, Alone Together, Solar, Equinox, My little Suede shoes og My one and only love. Rosa gaman!!!!!!!!!!

Einn í kotinu!

Nú er ég einn heima í viku þar sem Sandra hefur þurft að bregða sér til Íslands vegna veikinda ömmu sinnar. Það kemur örugglega til með að vera dálítið einmannalegt í kotinu. Ég er þess vegna bara fegin að skólinn sé að fara á fullt á mánudaginn. Það verður nóg að gera.

Um helgina byrjaði ég að æfa mig. Maður verður aðeins að koma sér í gang þar sem ég er nú að fara í einkatíma hjá Ulf Bandgren, gítarkennara skólans, á morgun. Það er fín aðstaða þarna í skólanum þannig að ég hugsi að ég æfi mig mest þar. Djassdeildin hefur sína hæð og er flestar stofur með trommusetti og öllum græjum þannig að það ætti að vera auðvelt að fá herbergi til að æfa sig eða með samspili. Bókunarkerfið virkar þannig að það er blað fyrir utan stofuna sem maður skrifar sig á en maður má reyndar ekki bóka lengur en þrjá tíma í senn í sömu stofu. Það þægilegasta er að allir eru með læsta skápa. Þar geymi ég gítarana mína og annað dót sem ég þarf ekki að taka með heim. Í gær fór ég semsagt að æfa mig um tvö leitið , mér tókst reyndar að semja lítið lag í leiðinni, sérstaklega ánægjulegt.

Síðan fór ég að hitta Krissa og Margréti niðrí bæ. Þeir sem þekkja ekki til þá erum við að tala um Kristmund Guðmundsson trommuleikara Angurgapa og Moskvitch og hans frú. Þau eru einnig að læra hér í Svíaveldi. Við fórum og fengum okkur að borða og fórum svo á smá pöbbarölt. Ég fór með þau á Linnégatan þar sem bjórinn er aðeins ódýrari en gengur og gerist. Þar kostar hann 29 kr. en yfirleitt kostar hann 40-50 kr. Við fengum okkur nokkra öl og svo var haldið heim á leið um miðnætti. Mér sýnist Svíar ekki vera nærri því eins öflugir á djamminu og Íslendingar. Það voru ansi margir á leiðinni heim um miðnætti í gær. Þeir byrja reyndar fyrr en ég er ekki sannfærður um að þeir séu jafn lengi að. En allavega þá er ég á leiðinni niðrí skóla að æfa mig...

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Grill og pub!

í gær var í farið í garð sem heitir Slotskogen. Þar var spilað brenni, sem er þjóðaríþrótt Svía, drukkið öl og grillað. Mjög róleg og fín stemmning bara. Eftir það var síðan farið á Stagedoor sem er eiginlega svona offical pub skólans. Þar var mikið fjör og mikið gaman. Gerðist svosem ekki mikið í dag nema það að ég þurfti að spila nokkra vel valda frasa á gítarinn fyrir allan skólann. Það var þannig að nýnemar hafa verið að undirbúa atriði hjá nett geggjuðum kennara í skólanum. Þetta atriði inniheldur söng og dans. Síðan bað kennarinn þá tónlistarmenn sem geta impróvíserað að rétta upp hönd. Svo einkennilega vildi til að ég var sá eini sem að rétti upp hönd og lenti því í því að taka gítarsóló yfir pentatónískan spuna mannkórsins. Til að gefa ykkur betri hugmynd um hvernig þetta hljómaði bendi ég á Hilliard ensemble með norska saxófónleikaranum Jan Garbarek. Þetta atriði var síðan flutt fyrir alla nemendur og kennara skólans í dag. Þá vita allir hver blessaði íslenski gítarleikarinn er...

Síðan fékk ég stundatöfluna og líst svona líka bara feiki vel á hana. Tveir tímar á mánudögum, þrjú samspil, einn tími og fundur á þriðjudögum, miðvikudögum er frí nema það séu fyrirlestrar, fimmtudögum er einn tími og á föstudögum frí. Semsagt nóg tími til að æfa sig og spila með félögunum. Við tókum okkur nokkrir til í bekknum og töldum í nokkur vel valin lög og ég get alveg fullyrt það að þetta eru bara ansi klárir spilarar.

Ég man ekki hvort ég var búin að segja eitthvað frá bekknum en í honum er allavega tveir trommarar, tveir kontrabassaleikarar, tveir gítaristar, saxófóngella, trompetleikari, básúnuleikari og síðast en ekki síst ein söngkona. Mér finnst sérstaklega gaman að það sé stelpa á saxófón enda ekki á hverjum degi sem maður sér það.

Nýjar myndir.


Hej då...

mánudagur, ágúst 22, 2005

Fyrsti skóladagurinn!

Í dag var fysti skóladagurinn. Hann fór í ýmsar kynningar, söng og dans. Alveg einstakt sænskt hópefli. Svona verður vikan að mestu leiti og endar síðan á fimmtudaginn með allsherjar partíi. Í dag var skipt niður í hópa og á hver að vera með einhversskonar skemmtiatriði á fimmtudaginn. Ég fékk verkefnið Kent goes folkmusic. Fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því með fiðluleikurum, víóluleikurum, söngvurum og einum rafmagnsgítarleikara. Það er semsagt séð til þess að koma manni inn í pakkann hér í Svíþjóð. Ég fékk einnig yfirlit yfir kúrsa annarinnar og líst stórvel á. Aðaluppistaðan er samspil sem er mjög jákvætt. Sé ekki betur en að ég sé í 54 samspilstímum hjá hinum og þessum kennurum. Aðrir kúrsar eru praktik, konstnärlig fördjupning (listræn dýpkun?), teori, multimedia, ergonomi (einhverskonar teygjur og beygjur) og datorkunskap( tölvu eitthvað). Stórstjarnan Anders Jormin er deildastjóri á minni línu og aðalkennari. Hann kennir mér fullt af samspili og kúrsana praktik og konstnärlig fordjupning.
Ég spjallaði einnig við nokkra skólafélaga og leist bara vel á þá. Við Sandra fórum með nokkrum af þeim í pizzu og hikuðum ekki við að tala við þá á sænsku. Allar sænsku myndirnar sem ég horfði á hafa sannarlega skilað sínu.

Mér líst allavega rosalega vel á það sem komið er. Gleymið svo ekki að kíkja á myndir dagsins.

laugardagur, ágúst 20, 2005

Sól og blíða

Þá er netið komið í lagi hér á Tyghusvägen og bara töluverð hamingja sem fylgir því. Síðan er veðrið búið að vera ótrúlega gott. Í dag var sól og 27 stiga hiti. Ekki hægt að kvarta yfir því. Í gærkvöldi fórum við Sandra á smá djamm. Byrjuðum á því að fá okkur kvöldmat og öl á vinalegum pöbb. Síðan röltum við um bæinn og litum inn á nokkra staði. Enduðum síðan á stað þar sem við sátum úti og gátum drukkið bjór á aðeins 29 krónur sænskar eða um 245 krónur íslenskar. Okkur fannast svona hálf dapurlegt að vera bara ein á djamminu þannig að við urðum hreinlega að komast í kynni við fólk. Sandra brá því á þann leika að spyrja stúlku við hliðina á okkur út í það hvernig næturstrætóinn gengi fyrir sig. Síðan leitt eitt af öðru og áður en ég vissi af voru þær komnar í hörku samræður. Síðan færðum við okkur yfir á borðið til þeirra og fleiri bættust við. Við hittum m.a. sellóleikara sem er í tónlistarháskólanum og er vinkona Hauks Gröndal. Hún er kona bassaleikara hljómsveitarinnar Ródent sem áðurnefndur Haukur er partur af. Svona er nú heimurinn lítill...

Svo erum við komin með myndasíðu,kíkið endilega á!!!

föstudagur, ágúst 19, 2005

Gautaborg!

Jaeja! Tha er eg maettur til Gautaborgar. Allt lofar rosa rosa godu. Ibudin er svakalega fin. Hun er glaeny, mjog smekkleg med risastorum isskap sem rumar mjog mikid af bjor og örugglega sma mat lika. Thad er lika rosalega audvelt ad komast a milli stada med sporvagni. Thad eru thrir vagnar sem fara rett fyrir utan husid med 10 minutu millibili og eru tveir theirra ekki nema 10 minutur nidri midbae.

I dag var farid i massiva innkaupaferd i IKAE verslun sem er rett fyrir utan Gautaborg. Thar var verslad allt mögulegt i buid, t.d. svefnsofi, stofubord, sofabord og eldhusahold. Sidan var leigdur risastor sendibill sem eg keyrdi heim med storgodum arangri. Sidan var farid i thad ad pusla öllu saman sem gekk ekki betur en that ad svefnsofinn er storundarlegur. Best ad skoda thad bara a morgun.

Vid Sandra erum buin ad vera standa okkur svakalega vel i saenskunni. Vid tolum ekki annad vid thetta folk og allir eru svakalega tholinmodir ad hlusta a okkur. Svo erum vid lika buin ad kaupa myndavel af gerdinni AOSTA. Thad kemur ekkert annad merki til greina thegar velja a gaeda myndavel. I alvöru talad tha voldum vid odyrustu myndavel sem vid fundum i allri Gautaborg sem er tho 5 mega pixel.

Nu svo erum vid bara ad bida eftir dotinu okkar fra Islandi sem er laest i gami herna einhversstadar en thegar vid faum thad er bara allt ad verda klart. Reyndar er netid ekki komid i gagnid sem er astaedan fyrir thvi ad eg blogga ekki fyrr. Sidan faid thid fullt fullt fullt fullt af myndum ur AOSTA velinni.

En allavega, komid bara i heimsokn sem fyrst og prufid nyja svefnsofann...

Svo er eg komin med simanumer her: 0046-73992259

Bless i bili...

mánudagur, ágúst 15, 2005

Einn dagur í brottför

Nú er allt að verða klappað og klárt. Búið að halda kveðjupartí, pakka og ganga frá öðrum lausum endum. Á morgun verður svo lagt í hann. Flogið til Kaupmannahafnar kl. 16.10, gist ein nótt þar og síðan haldið til Gautaborgar snemma morguns. Ég bíst því við að næsta færsla verði frá Gautaborg.
Bless í bili...

miðvikudagur, ágúst 10, 2005

Malus a Kaffi Rosenberg!

Annað kvöld heldur hljómsveitin Malus tónleika á Kaffi Rósenberg. Eins og fyrri daginn verða á daskrá pop- og jazzlög úr ýmsum áttum. Í hljómsveitinni eru ásamt undirrituðum Ása Bjarnadóttir söngkona, Sigurdór Guðmundsson bassaleikari og Birgir Baldursson trommari.

Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er miðaverð 700 kr.



Svo vil ég minna fólk á að á laugardaginn munu Gautaborgarfarar halda kveðjupartí á Stúdentakjallaranum. Gamanið hefst upp úr 21.00 og munu Autoreverse, Moskvitch og fleiri taka lagið...

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Nóg að gera!!!

Ég hef nú ekki verið nógu duglegru að blogga undanfarna daga þó það hafi verið nóg að gerast. Á laugardaginn héldum við í Autoreverse okkar lokatónleika. Þið þurfið ekki að örvænta því við munum líklega spila tvenna tónleika á Rósenberg um jólin. Við vorum alveg í skýjunum eftir tónleikana því staðurinn var troðfullur og stemmningin frábær. Að þessu sinni vildum við spila langa tónleika og tókum því þrjú sett. Við byrjuðum að spila kl. 23.00 og voru hættir kl. 02.40! Nokkuð góður árangur það. Þetta var allavega ótrúlega gaman!
Í dag fór ég svo með tíu kassa, sjónvarp, tvo svarta ruslapoka og eitt stykki amerískt rúm á Vöruhótelið. Þessi varningur fer svo í siglingu á morgun og mun enda á Tyghusvägen 8, Läg 101, 415 27 Gautaborg sem verður nýja heimili okkar Söndru. Endilega lítið við eftir 18. ágúst. Trevlig resa!

fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Undirbúningur!

Síðustu daga höfum við félagarnir verið að undirbúa lokatónleika Autoreverse. Nokkrum lögum hefur verið bætt við prógrammið og ákveðið hefur verið að spila þrjú sett. Síðan er ég byrjaður að pakka fyrir flutninginn og búinn að setja í alveg heila þrjá kassa. Á morgun verður síðan heilmikið djamm því þá er 5 ára MR reunion. Leikurinn hefst með bekkjarpartíi kl. 18.30 og verður síðan haldið í sal þar sem allir munu hittast og tjútta fram eftir nóttu. Þar verða skemmtiatriði og munu m.a. Malus taka nokkur lög. Svo sjáumst við bara á laugardaginn...