segir countdown calenderið mitt sem er hluti af Dashboard sem notender Tiger, nýjasta stýrikerfis apple, ættu að kannast við. Í kvöld fórum við Sandra semsagt að hitta Þóru nokkra Marteinsdóttur sem stundað hefur nám í Musikhögskolan vid Göteborgs Universitet. Þaðan var hún að útskrifast í vor með mastersgráðu í tónsmíðum og er því ný flutt heim. Ástæðan fyrir því að við hittum hana er fyrst og fremst sú að við höfum tekið að okkur að stjórna íslenskum barnakór sem starfræktur er í Gautaborg á vegum íslensku kirkjunnar. Þóra hefur stjórnað honum síðastliðin ár. Hún þekkir vel til eftir fjögura ára búsetu og gat gefið okkur ýmis góð ráð. Að hennar sögn er mjög góð stemmning í skólanum og þá sérstaklega í afro deildinni sem við Sandra erum að fara í. Hún sagði okkur meðal annars frá krá sem heitir Stagedoor og er viðverustaður nemanda tónlistarskólans og leiklistarskólans. Mælti hún sérstaklega með því að við værum dugleg að sækja hana til að byrja með. Það myndi hjálpa okkur að kynnast fólk og æfa okkur í sænskunni. Nemendur eru víst duglegir að sækja hana og fá sér öl. Þetta hljómar alls ekki illa og ekki laust við að mér sé farið að hlakka til...
Ég læt hér fylgja mynd af garði sem er í skólanum þar sem nemendur slaka gjarnan á í hléum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli