Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð.
Árið 2005 einkennist af miklum breytingum í mínu lífu. Ég tók stefnuna á framhaldsnám í tónlist og í byrjun janúar sótti ég um þrjá skóla í Svíþjóð. Í mars var svo haldið í þriggja vikna ferðalag til þess að þreyta inntökupróf í þessum skólum sem voru í Gautaborg, Malmö og Ingesund. Síðan var beðið eftir niðurstöðum úr inntökuprófunum. Ég beið nokkuð rólegur þar sem ég gerði mér ekkert frekar von um inntöku þar sem hver skóli tekur inn 1-2 gítarleikara á hverju ári. Það var síðan mikil gleði þegar í ljós kom að ég hafði fengið inngöngu í alla skólana. Gautaborg varð síðan fyrir valinu eins og flestir vita.
Enn óvæntari breytingar urðu á mínu lífi þegar þriggja ára sambandi okkar Söndru lauk. Erfiðleikarnir byrjuðu í sumar en svo var þetta endanlega búið úti í Svíþjóð.
Dvölin í Gautaborg hefur verið mjög lærdómsrík. Ég hef kynnst mörgu góðu fólk og eignast nýja vini. Á nýju ári bíða spennandi verkefni sem ég hlakka til að takast á við.
Gleðilegt nýtt ár!
sunnudagur, janúar 01, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Gleðilegt ár Siggó minn!
Sömuleiðis :)
Gleðilegt ár & takk saa mukket fyrir það gamla :) Vonum að 2006 verði þér súper dúper :)
Knús,
Baunirnar þrjá í Odense :)
Tack så mycket kæru baunir og takk fyrir fallegt jólakort :)
Hafið það sem allra best á nýju ári!
Skrifa ummæli