miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Aftur til Gautaborgar!

Nú er ég loksins komin heim. Búin að vera í Finnlandi meira og minna allan ágúst mánuð. Tónleikaferðin gekk rosalega vel. Mikið af fólki og mikil stemmning. Spilaði á nokkrum meira "serious" jazzklúbbum en ég er vanur og alveg frábært hvað þeir sem sáu um tónleikana tóku vel á móti okkur. Hjálpuðu okkur að bera græjurnar inn, máltíð fyrir tónleikana, vatnsflaska fyrir alla á sviðinu o.s.fr. Mikið vildi ég að þetta væri alltaf svona...
En allavega þá er Finnland alltaf jafn fallegt og skemmtilegt. Kann betur að meta það með hverri heimsókn.
Um helgina fer ég til Osló í smá heimsókn til bróður míns og svo á námskeið á vegum íslensku kirkjunar þar á laugardeginum. Eftir helgi byrjar svo skólinn á ný.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hei! Du får ringe når du kommer til Oslo. Her er liv og glede! Takk for herlig tur i Finland.
-jo

Sigurður sagði...

Har du börjat lära dig isländska Jo? Det här er bra! Tag hand om dig vännen.

Sandra sagði...

velkominn til gauta! hér er ég og stödd.... verðum að hittast við fyrsta tækifæri, t.d. á morgun!

Kram

Sigurður sagði...

Sömuleiðis :) Ég er að fara til Osló í dag en ég verð komin á mánudaginn. Ég læt í mér heyra!
-Siggi