Nú er orðið allt of langt síðan ég bloggaði síðast. Hér segir í stuttu máli frá því sem drifið hefur á daga mína undanfarið:
- Elmar og Tryggvi komu í heimsókn til mín í síðustu viku og voru hér í fimm daga. Fórum m.a. í Liseberg, á tónleika á Nefertiti, skoðuðum eyjarnar o.fl.
- Fluttu úr 18 fermetra herbergi í 70 fermetra íbúð sem ég leigi með vini mínum Pauli. Hélt innflutningspartí og fékk heimsókn frá Securitas. Söngur íslenskra gesta kennt um!
- Byrjaði í skólanum og byrjaði að æfa mig af krafti.
- Tilhlökkunarefni líðandi stundar: Eftir tvær vikur fer ég til Íslands með Laser til þess að spila á Jazzhátíð Reykjavíkur :)
föstudagur, september 08, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Til hamingju með íbúðina :)
Takk :)
18 í 70, það er virkileg framför! Til hamingju! Hvenær eru tónleikarnir nákvæmlega???
Skrifa ummæli