föstudagur, mars 02, 2007

Heima veikur

Nú hef ég ekkert verið í sérstaklega blogg stuði að undanförnu en fyrst ég hangi nú heima veikur er eins gott að skrifa eitthvað.

Síðasta vika hefur farið í að spila undir hjá taugaveikluðum umsækjendum í tónlistarskólanum. Á mánudaginn spilaði ég undir hjá trommurum, þriðjudag í annari umferð hjá bassaleikurum og trommurum og á miðvikudaginn hjá blásurum. Eftir þessa þriggja daga geðveiki varð ég svo veikur og kom það mér ekki á óvart. Er hins vegar allur að hressast eftir Friends maraþon og súkkulaðiát.

Merkilegt þótti með þessi inntökupróf að standardinn hefur sjaldan verið lægri. Samt er gríðalega stór hópur fólk sem vill leggja fyrir sig hljóðfæraleik eða aðrir listir án þess að vilja leggja allt of mikið á sig. Má nefna sem dæmi að yfir 500 umsækjendur voru í leiklistardeildina og 150 í söng.

Svo er engin sem sker sig út úr með því að vera með eitthvað nýtt og ferskt lag heldur eru allir með sömu gömlu jazzlummurnar. Vinsælustu lögin voru Footprints, Straigh no Chaser og Nardis.

Heimur versnandi fer!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég kom bara með frumsamið. Það reyndist ekki vel. Betra að hafa eitthvað sem meðspilararnir þekkja segi ég, svo það gangi vel að spila saman.