Svosem lítið að frétta hérna megin. Sól og blíða.
Búin að flytja eldúsborðið út á svalir og borða því morgunmat í sólinni.
Er algjörlega komin upp á lagið með það að borða bara sætindi í morgunmat og kaffi með því.
Í hádeginu bý ég mér yfirleitt til einhvern pastarétt, t.d. pasta Carbonara eða pasta með hinni frægri blöndu af tómmötum og pesto.
Á kvöldin er voðalega notalegt að fá sér kjöt. Hér er mikið úrval af alskonar sneiddu kjöti sem einfalt er að skella á pönnuna.
Eftir tvær vikur fer ég til Gautaborgar og þar taka við strangar æfingar.
Fyrsta lagi þarf ég að undirbúa lokatónleikana mína. Svo er Lína með tónleika sem ég tek þátt í og svo spila ég reyndar með henni á öðrum dúo tónleikum. Þannig að það verður mikið um æfingar í góðum félagskap.
Svo verður haldið með fríðu föruneyti til Eistlands þar sem Lína heldur lokatónleika sína frá Akademíunni í Tallinn. Svo verður örugglega með húllumhæ eins og venjan er þegar haldið er í þessa stórkostlegu borg.
föstudagur, maí 02, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæ Siggi!
Farðu nú að láta í þér heyra! Hvernig gengu útskriftartónleikarnir? Ertu farinn til Eistlands, eða ertu á Ítalíu, Svíþjóð? Þú ert nú meiri heimsborgarinn...!
Skrifa ummæli