mánudagur, júní 23, 2008

Ferðalag

Á miðvikudaginn hefst ferðalag mitt og Línu um Suður Ítalíu. Mig hlakkar ekkert smá til enda þvílíkt fallegt veður núna alla daga.

Það skemmtilega við Ítalíu er að hvert sem þú ferð er svo mikil saga og hefð. Hvert svæði hefur sinn einstaka matarkúltúr, sem byggir á áralangri hefð og þeim hráefnum sem fáanleg eru á svæðinu.

Eftir að ég sæki Línu í Róm höldum við yfir á austurströndina með nokkrum stoppum í Abruzzo héraðinu.

Við ströndina liggur Puglia með 800 km strandlengju og einhver fallegustu svæði Ítalíu. Áhrif frá Grikklandi, Spáni og Tyrklandi. Svæðið er frægt fyrir matargerð og Ítalir kalla La Cucina Povera eða matargerð hinna fátæku sem er í raun langt frá því að vera fátækur matur því á svæðinu er endalaust af grænmeti, ávöxtum og jurtum.

Svo er vonandi að ég geti langt inn nokkrar myndir síðar...

1 ummæli:

Hafdís gítareigandi sagði...

Spennó :)!