mánudagur, júní 26, 2006
Langar nætur!
Það er óhætt að segja að helgin hafi verið mesta djammhelgi Íslandsdvölarinnar. Það var farið út á lífið og ég endaði með því að vera í bænum til sex bæði kvöldin. Það var svosem nógu að fagna því Dagur Bergsson hélt afmælisveislu á föstudaginn og vinkonunur mínar, Steinunn og Camilla, voru að útskrifast úr HÍ. Annars hitti ég fullt af skemmtilegu og hressu fólki í bænum. Gummi Pí spurði mig m.a. af því hvort ég væri búin að fara í sund í Gautaborg. Svo sagði hann mér að Gautaborg hafi verið síðasta vígi sameiginlegra sturtuklefa. Sjálfur bjó hann í Svíþjóð fram að tíu ára aldri og var þá góssentíð sænskra félagsfræðirannsókna. Ein rannsóknin var tilraun með sameiginlega sturtuklefa. Svíum er svosem trúandi til alls...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli