fimmtudagur, júní 22, 2006
Vertíð
Líf mitt þessa dagana gengur að mestu út á vinnu. Ég er að kenna á námskeiði í GÍS og er yfirleitt að frá 14 til 21.20 á kvöldin. Eftir þennan tíma er svosem ekki mikil orka eftir en ég hef þó aðeins afrekað að hitta fólk. Nú er fullur undirbúningur fyrir veiðiferð ársins sem ég mun fara í með æskufélögunum Elmari og Tryggva fyrstu helgina í júlí. Það felur í sér að fara út á Miklatún og æfa fluguköstin. Nú svo eru bara 13 dagar í að ég fari með Krissa á jazzhátíðina í Kaupmannahöfn.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
úú...ætlið þið á Brad???...ég ætla að þvælast þangað eitthvað ein...ætla að reyna að þefa uppi Íslendinga á hátíðinni :)
Nei við stoppum ekki svo lengi. Við ætlum að sjá Pat Metheny, Herbie Hancock og John Scofield. Þú ættir samt að sjá Brad. Það er örugglega alveg þess virði.
Skrifa ummæli