fimmtudagur, nóvember 02, 2006
Á miðvikudaginn varð ég vitni af flutningi á verki sem fól í sér að hella vatni á milli ca. 20 glerflaskna sem var raðað í hring. Þetta átti sér stað á fyrirlestri sem ég var á í skólanum. Listamaður þessi hikaði ekki við það og byrjaði að hella á milli án þess segja nokkuð áður. Mér fór strax að leiðast og hugsaði með mér hvort hann ætlaði virkilega að fara heilan hring. Svo þegar hann var búin að fara heilan hring þá hélt bara áfram þangað til að nægilega mikið var búið að sullast niður og ekkert vatn eftir til að hella á milli. Þetta verk tók u.þ.b. 35 mínútur...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þarna er um að ræða fornt listform sem nefnist Aquaconcordans, stundum nefnt aguatranslocationes. Upprunnið í suður-Persíu um 600 f.kr.
List þessi hefur náð mikilli útbreiðslu frá austur Evrópu og til Balkanskagans.
Gaman að heyra að einhver hefur tekið að sér að kynna þetta í Svíaríki.
Gott stöff!
Skrifa ummæli