sunnudagur, nóvember 26, 2006
Plöggi plögg
Það hefur verið alveg óvenju mikið að gera hjá mér síðustu daga. Mikill tími hefur farið í að undirbúa komandi tónleikaferð sem hefst á þriðjudaginn. Bóka flug, gistingu, bíl o.s.fr. Nú erum við loksins búnir að mixa upptökur sem Laser tók upp í Finnlandi í sumar. Hægt er að heyra nokkur dæmi á myspace síðunni okkar. Mig hlakkar ekkert smá til þess að koma til Íslands og spila á Rósenberg 8. og 9. desember. Er annars einhver semur áhuga á að vinna í miðasölu? (peningur í boði). Kíkið endilega á heimasíðuna okkar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Til hamingju með afmælið!
Til hamingju með afmælið kúturinn minn, var að reyna að hringja í þig, en það kom bara einhver sænsk kelling í símann og sagði að þú værir busy ;)
Afmælið þitt er ekki búið í mínu landi ennþá!
Til hamingju með afmælið! :)
Vá .. það er svo langt síðan að ég gaf þér afmælisgjöfina að ég steingleymdi afmælisdeginum þínum. ... og þú sem hringdir í fyrradag! Heheh! Hlakka til að sjá ykkur á Rósenberg.
Vonandi áttirðu góðan afmælisdag.
Takk kærlega :) Ég er með nýtt símanúmer Brynjar og ætlaði að hringja í þig um daginn og var ekki með símann þinn. Mitt nýja númer er allavega: +46 735 151413
Skrifa ummæli