mánudagur, desember 04, 2006

Back to Finland

Í gær kom ég enn og aftur til Finnlands eftir 16 tíma ferðalag frá Esbjerg í Danmörku. Dagurinn hófst með því að við tókum lest kl. 06.50 til Kaupmannahafnar. Síðan var flogið til Helsinki og lent þar 15.15. Klukkan 16.00 náðum við í bílaleigubílinn og keyrðum til Helsinki þar sem við náðum í græjurnar sem við erum með á leigu. Síðan var keyrt í 4 tíma til Kuopio, sem er í miðju Finnalandi, og mætt þangað kl. 22.00. Græjunum stillt upp og svo var talið í klukkan 22.30. Þrátt fyrir að þetta hafi verið lengti dagur æfi minnar þá spiluðum við okkar bestu tónleika í ferðinni hingað til.

Ekki gekk eins vel á leiðinni til Esbjerg. Við tókum lest frá Kaupmannahöfn til Esbjerg þar sem við áttum að skipta um lest í Fredericia og taka aðra lest til Esbjerg 10 mínútum seinna. Þegar við vorum að skipta um lest vorum við frekar hægfara þar sem við vorum með helling af græjum, þar á meðal kontrabassa í risastóru flight case. Við náðum allavega að koma öllu dótinu út og ég svona rétt leit yfir svæðið þar sem við sátum til að ganga úr skugga um að við gleymdum engu. Síðan þegar ég ætlaði út úr lestinni lokaðist hurðin og ég varð eftir í lestinni sem fór af stað þrátt fyrir að ég ýtti á alla takka í panik. Ég hugsaði með mér að nú væri þetta búið spil, lestin myndi stoppa eftir klukkutíma og ég myndi missa af tónleikunum. En allt reddaðist að lokum. Næsta stopp var eftir korter og ég náði lest til baka til Fredericia og til Esbjerg klukkutíma síðar...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha! Fyndið.

Nafnlaus sagði...

V'a stress! Hehehe


'Eg er mikid spaeld ad missa af ykkur i kvold!


geimVEIRA

Sandra sagði...

sjitt hvað það er ótrúlega fyndið að þú hafi orðið eftir í lestinni.... svona eftir á að hyggja ;)