miðvikudagur, október 24, 2007
Road Trip!
Nú er komið að því að ég flyt til Ítalíu þar sem ég mun vera skiptinemi fram að næsta sumri í Perugia. Í gærkvöldi lagði ég af stað á eigin bíl og tók bát frá Gautaborg til Kiel í þýskalandi. Þaðan keyrði ég til Bremen þar sem ég mun dvelja næstu daga hjá Moritz, þýskum vini mínu. Ég mætti til Bremen kl. 11.30 í morgun og fór beint á æfingu með Moritz og hljómsveit. Ég mun svo spila með þeim á útskriftartónleikum Mortiz á morgun. Að sjálfsögðu er ég með þýskt númer sem ég mun nota meðan ég er í þýskalandi: +49 176 76145633.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þrælplanað hjá þér ... að ná svona í rassgatið á októberfest í germaníu ! ;-)
Skrifa ummæli