Lagði af stað 09.30 frá Bremen í Norður-þýskalandi til Basel í Sviss. Eftir nokkra þurra daga var hellirigning þegar ég lagði í hann. Bílinn minn stóð sig vel og ferðin gekk hratt fyrir sig á hraðbrautinni í gegnum þýskaland. Var mættur á áfangastað 06.30. 750 km. eknir og leiðin hálfnuð.
Þriðjudagur:
Efir nokkra tíma svefn lagði af stað frá Basel kl. 04.30 til að sleppa við morgunumferðina í gegnum alpana. Umferðin gekk hratt fyrir sig í Sviss. Þegar ég kom yfir landamærin til Ítalíu og nálgaðist Milano versnuðu málin. Sat fastur á hraðbrautinni í kringum Milano í tvo og hálfan tíma. Þegar ég nálgaðist Flórens var þvílík rigning og mikil umferð á mjórri hraðbraut í fjöllunum. Var dauðþreyttur þegar ég mætti til Perugia kl. 18.00 eftir rúmlega þrettán tíma akstur. Ennþá þvílík rigning og þrumuveður í þokkabót. Umferðin algjörlega biluð á þröngum götum, endalausar brekkur og einstefnu götur. Leið og ég hægði á mér til að lesa á skilti var flautað á mig. Stoppaði við verslun til að spyrja til vegar. Hitti gjörsamlega engan sem talaði ensku. Var orðin rennandi blautur og ringlaður af umferðinni. Var með aleiguna í bílnum svo ég keyrði um í góða stund til að leita af hóteli með bílageymslu. Fann það að lokum svo þessi langi dagur var á enda.
Miðvikudagur:
Farið að stytta upp. Var komin í sambandi við einn íbúðareigandi og fór að skoða íbúðina. Hún var algjör vonbrigði. Leit vel út en var í kjallara með einum litlum glugga sem var þar að auki með dökku gleri. Held að ég yrði bilaður í íbúð þar sem ég sæi ekki út. Fór strax að leita að annari. Labbaði inn á íbúðarmiðlun fyrir stúdenta. Þau sýndu mér íbúð með frábæru útsýni. Hún var í dýrari kantinum svo ég bar mig illa og tókst að prútta verðið niður um 100 evrur.
Fimmtudagur:
Búin að flytja allt dótið inn. Mikill léttir að vera komin með allt dótið á öruggan stað og búin að leggja bílnum. Gat byrjað að koma mér fyrir. Sólin skín og ég er ánægður með lífið eftir erfiða daga.
Læt fylgja með nokkrar myndir af þessu stórkostlega útsýni ur íbúðinni minni:
4 ummæli:
YEAH! Gaman að heyra að þú komst heill á húfi! Magnað útsýni þarna! Fer að vera spurning um að kíkja í pasta! ;-)
Glæsó að þú komst heill á leiðarenda til Bella Italia! Er alveg abbó, bella Italia, nammigóði maturinn, úúúú held við verðum bara að plana heimsókn til þín meðan þú verður þarna :)
Vona að það haldi áfram að ganga svona vel,
Knús
Fríða
Vá hvað þetta er allt spennandi! Og mikið rosalega hlýturðu að hafa verið aumlegur ef þú gast fengið íbúð á 100 evrur! Eða er það á viku kannski? Gangi þér vel!
Eg gat fengid thau til ad laekka ibudinna um 100 evrur. Fra 600 nidur i 500 evrur.
Skrifa ummæli