þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg jól í útlöndum

Er búin að hafa það ótrúlega gott síðustu daga hjá systur minni og fjölskyldu í Lúxemburg ásamt foreldrum mínum og Línu.

Hér er ótrúlega jólalegt. Kalt, stillt og þakið hvítri fönn. Gaman að hitta alla. Frændsystkin mín hafa stækkað mikið frá því fyrir rúmu ári síðan þegar ég hitti þau síðast.
Alma, 5 ára frænka mín, kallar mig ennþá Sigga sæta og stundum Sigga trúð eftir að ég leyfði henni að greiða hárinu mínu þannig að það stóð beint upp í loft. Hún hló mikið af mér enda sérstaklega glaðlegur krakki sem alltaf er brosandi og hlæjandi.
Það var gaman að fylgjast með Tómasi litla frænda mínum opna pakkana með stórt bros á vör.
Emelía hefur líka fullorðnast mikið. Alltaf gaman að spjalla við hana. Hún kom mér inn í facebook og ég hjálpaði henni að setja upp tónlistarforritið Reason.

Á morgun fer ég aftur til Ítalíu og verð nokkra daga ásamt Línu í Torino hjá systur hennar og fjölskyldu.

Engin ummæli: