sunnudagur, febrúar 10, 2008

Lífið á Ítalíu!

Verð að viðurkenna að mikil bloggleti hefur verið í gangi. Það er eins gott að ég skrifi eina færslu snarlega svo þetta deyi nú ekki algjörlega út.

Fyrst má nefna það að síðustu viku hef ég fengið tvær góðar heimsóknir. Fyrst kom Tryggvi og svo kom Pauli. Þetta var gott tækifæri til að prófa nokkra veitingastaði, fara út á lífið og taka túristapakkann í Perugia. Óhætt að segja að hvorki ég né mínir gestir hafi verið fyrir vonbrigðum.
Frábær matur og vín og margt að sjá. Má þar nefna minjar frá Etrúskum sem er frá því fyrir Krist, minjar frá Rómverjum og byggingar frá miðöldum sem eru í meirihluta í miðbæ Perugia.

Fyrstu þrír mánuðirnir hafa farið í að læra ítölskuna. Ég ákvað að taka þetta föstum tökum í byrjun og tók tvo mánuði í ítölskunámskeið. Ekki hefur gefist tími fyrir margt annað en núna hef ég lagt niður enskuna hér og get spjallað þokkalega um daginn og veginn á ítölsku. Til að lyfta mér upp horfi ég gjarnan á ítalskar bíómyndir.

Svo er það stefnan sem í hef tekið í tónlistarnáminu hér en ég ætla að fara betur út í það síðar...

Engin ummæli: