þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Svíþjóð hér kem ég!

Á morgun fer í ég í heimsókn til Svíþjóðar í fyrsta skipti eftir að ég kom til Ítalíu. Mikið tilhlökkunarefni.

Þar er auðvitað Lína sem mig hlakkar mig til að sjá. Er þetta lengsta tímabil sem við höfum verið fjarri hvort öðru. Hefur samt gengið vonum framar og ekki hægt að segja annað en að við séum bara nokkuð góð í þessu.

Í Gautaborg einnig mikið af góðu fólki og góðum vinum sem mig hlakkar til að hitta.
Einnig kem ég til með að vinna með nýju bandi sem samanstendur af norska trommuleikaranum Öyvind og svissneska bassaleikaranum Kasper. Stendur til að æfa nýtt efni sem þeir félagar hafa verið að undirbúa og svo verður keyrt á tónleikaferð í Sviss næstkomandi september.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Hæ Siggi!!
Gaman að lesa að allt gengur vel á Ítallalíu ;)
Þú hefur ábyggilega svolítið gaman af því að kíkja á síðuna mína. Litla fjöskyldan af Búðarbrautinni er ekki svo lítil lengur......

kv Ingrid