þriðjudagur, október 31, 2006
Loksins nettengdur
Ég hringdi loksins í netfyrirtækið eftir að hafa beðið eftir nettengingu frá þeim í þrjár vikur. Þá var mér sagt að það væri ekki laus lína í húsið mitt og að ég yrði að fá mér fasta símalínu hjá öðru fyrirtæki og hafa svo samband við þá aftur. Þvílíkt og annað eins rugl. Mér datt ekki til hugar að reyna að eiga viðskipti við þá aftur heldur hringdi í annað fyrirtæki sem reddaði nettengingunni á 10 mínútum...
sunnudagur, október 29, 2006
Afmælisbarnið
miðvikudagur, október 18, 2006
Mike Stern
Sá gítarleikarann Mike Stern á sunnudagskvöldið á Nefertiti. Hann er með nákvæmlega sama sánd, sömu hárgreiðslu og í sömu fötunum og fyrir 20 árum síðan. Hafði samt alveg gaman af fyrstu 10 mínútunum.
Annars hef ég verið í litlu netsambandi undanfarið þar sem það tekur u.þ.b. þrjár vikur að fá nýja internettengingu hér í Svíþjóð. Fyrir utan það að það er meiriháttar mál að finna kaffihús sem er með þráðlaust net.
Annars hef ég verið í litlu netsambandi undanfarið þar sem það tekur u.þ.b. þrjár vikur að fá nýja internettengingu hér í Svíþjóð. Fyrir utan það að það er meiriháttar mál að finna kaffihús sem er með þráðlaust net.
miðvikudagur, október 04, 2006
Íslandsförin
þriðjudagur, september 26, 2006
Laser á Íslandi
Kom til landsins í gær með Laser og fór beint með þá í Bláa lónið. Í dag fór ég svo með þá á Þingvelli og Gullfoss og Geysi. Það er óhætt að segja að strákarnir séu alveg heillaðir af landi og þjóð. Svo búum við heima hjá mömmu og pabba í góðu yfirlæti. Á morgun munum við taka lagið á opnunarhátíð Jazzhátíðar Reykjavíkur í ráðhúsinu og svo minni ég á tónleika okkar á Q-bar á fimmtudaginn kl. 22.30.


mánudagur, september 18, 2006
Meg Nem Sa
Langar bara að minnast á að það er komin út ný Plata með Tyft sem ber titilinn Meg Nem Sa. Hljómsveitin er leidd af gamla gítarkennaranum mínum, Hilmari Jenssyni, sem er frábær gítarleikari og tónlistarmaður. Ég missti því miður af útgáfutónleikum þeirra á Nasa en ég næ mér í diskinn við fyrsta tækifæri.
fimmtudagur, september 14, 2006
Laser á Jazzhátíð Reykjavíkur
Fimmtudaginn 28. september mun ég spila með Laser á Jazzhátíð Reykjavíkur. Ég get ekki beðið eftir að koma heim og sýna þeim yndislega landið mitt.
Tónleikarnir verða á Q-bar (var áður Ari í Ögri)kl. 22.30. Miðasala hófst í dag og fer fram á midi.is og í verslunum Skífunar. Kaupið ykkur endilega miða fyrir fram. Hlakka til að sjá ykkur!
Tónleikarnir verða á Q-bar (var áður Ari í Ögri)kl. 22.30. Miðasala hófst í dag og fer fram á midi.is og í verslunum Skífunar. Kaupið ykkur endilega miða fyrir fram. Hlakka til að sjá ykkur!
föstudagur, september 08, 2006
Flutningur o.fl.
Nú er orðið allt of langt síðan ég bloggaði síðast. Hér segir í stuttu máli frá því sem drifið hefur á daga mína undanfarið:
- Elmar og Tryggvi komu í heimsókn til mín í síðustu viku og voru hér í fimm daga. Fórum m.a. í Liseberg, á tónleika á Nefertiti, skoðuðum eyjarnar o.fl.
- Fluttu úr 18 fermetra herbergi í 70 fermetra íbúð sem ég leigi með vini mínum Pauli. Hélt innflutningspartí og fékk heimsókn frá Securitas. Söngur íslenskra gesta kennt um!
- Byrjaði í skólanum og byrjaði að æfa mig af krafti.
- Tilhlökkunarefni líðandi stundar: Eftir tvær vikur fer ég til Íslands með Laser til þess að spila á Jazzhátíð Reykjavíkur :)
- Elmar og Tryggvi komu í heimsókn til mín í síðustu viku og voru hér í fimm daga. Fórum m.a. í Liseberg, á tónleika á Nefertiti, skoðuðum eyjarnar o.fl.
- Fluttu úr 18 fermetra herbergi í 70 fermetra íbúð sem ég leigi með vini mínum Pauli. Hélt innflutningspartí og fékk heimsókn frá Securitas. Söngur íslenskra gesta kennt um!
- Byrjaði í skólanum og byrjaði að æfa mig af krafti.
- Tilhlökkunarefni líðandi stundar: Eftir tvær vikur fer ég til Íslands með Laser til þess að spila á Jazzhátíð Reykjavíkur :)
mánudagur, ágúst 28, 2006
sunnudagur, ágúst 27, 2006
Pólitík framhald
Vinstriflokkurinn í Gautaborg vill fækka bílastæðum í miðbænum og byggja íbúðarhúsnæði í staðin. Nú líst mér betur á þá heldur en fyrri daginn. Miðbær fyrir fólk en ekki bíla. Hér er á bæ eru almenningssamgöngur líka raunhæfur möguleiki.
fimmtudagur, ágúst 24, 2006
Pólitík
Las í morgun grein frá vinstriflokknum (vänsterpartiet) í Gautaborg. Þeir vilja kaupa allar líkamsræktarstöðvar í Gautaborg og reka. Þetta myndi þýða að borgin þyrfti að punga út þvílíkum peningum til að kaupa 30 fyrirtæki og leyfi ég mér að efast um að þjónustan verði betri þegar samkeppnin er engin. Þeir fá allavega ekki mitt atkvæði!
miðvikudagur, ágúst 23, 2006
Aftur til Gautaborgar!
Nú er ég loksins komin heim. Búin að vera í Finnlandi meira og minna allan ágúst mánuð. Tónleikaferðin gekk rosalega vel. Mikið af fólki og mikil stemmning. Spilaði á nokkrum meira "serious" jazzklúbbum en ég er vanur og alveg frábært hvað þeir sem sáu um tónleikana tóku vel á móti okkur. Hjálpuðu okkur að bera græjurnar inn, máltíð fyrir tónleikana, vatnsflaska fyrir alla á sviðinu o.s.fr. Mikið vildi ég að þetta væri alltaf svona...
En allavega þá er Finnland alltaf jafn fallegt og skemmtilegt. Kann betur að meta það með hverri heimsókn.
Um helgina fer ég til Osló í smá heimsókn til bróður míns og svo á námskeið á vegum íslensku kirkjunar þar á laugardeginum. Eftir helgi byrjar svo skólinn á ný.
En allavega þá er Finnland alltaf jafn fallegt og skemmtilegt. Kann betur að meta það með hverri heimsókn.
Um helgina fer ég til Osló í smá heimsókn til bróður míns og svo á námskeið á vegum íslensku kirkjunar þar á laugardeginum. Eftir helgi byrjar svo skólinn á ný.
mánudagur, júlí 31, 2006
Tónleikaferð Laser!
Aftur til Finnlands!
Á miðvikudaginn legg ég aftur í hann til Finnlands. Að þessu sinni er ég að fara í brúðkaup hjá mínum kæru vinum Guðna og Camillu. Það á eftir að vera mikil gleði enda verður þar saman komin góður hópur vina og fjölskyldu. Síðan tekur við tónleikaferð með Laser og upptökur...
miðvikudagur, júlí 26, 2006
þriðjudagur, júlí 25, 2006
Yndislega sumar!
Í dag er búið að vera 25 stiga hiti og sólskin í Gautaborg. Byrjaði daginn á því að fara í Go-kart með nokkrum vinum. Að sögn heimamanna ná þessir bílar allt að 75 km hraða. Nokkuð gott það! Fórum síðan að baða í hafinu sem þykir mikið sport hér í Svíþjóð enda sjórinn hlýr og góður. Í kvöld er svo grillveisla til þess að kveðja okkar kæru skiptinema Moritz og Catrine sem eru að fara á morgun. Það er ekki hægt að segja annað en að sumarið sé tíminn!
föstudagur, júlí 21, 2006
Finnland
Það jafnast fátt á að vera í góðu veðri í sumarhúsi og hvað þá í miðjum skógi í Finnlandi. Búin að vera í viku í sumarhúsi Pauli með nokkrum vinum. Er m.a. búin að liggja í sólbaði, sigla bát, baða í saunu, baða í vatninu, sitja við varðeld og syngja. Auk þess sem ég var gestur í brúðkaupi ásamt því að spila með dansbandi þar. Tókst reyndar næst síðasta kvöldið að togna á fæti þegar ég stökk af bryggju í vatn sem reyndist töluvert grynnra en ég hafði gert ráð fyrir. Það var svo brunað með mig til læknis til að athuga hvort ég væri nokkuð brotin. Sem betur fer var þetta bara tognin en ég þarf samt sem áður að ganga með hækjur í nokkra daga. Sem betur fer var þetta í lokin á ferðinni...






miðvikudagur, júlí 12, 2006
Á ferð og flugi
Jæja þá er ég búin að vera í Gautaborg í nokkra daga. Svo virðist sem ég hafi tekið rigninguna með mér frá Íslandi. Ég sem var búin að byrgja mig upp af sólarvörn. Á morgun er ferðinni svo heitið til Finnlands þar sem ég mun spila í brúðkaupi systur Pauli. Verð þar í viku í góðum hópi vina frá Gautaborg. Nú er bara að vona að ég taki ekki rigninguna með mér!!!
mánudagur, júlí 10, 2006
John Scofield!
Herra John Scofield átt hug mitt og hjarta í Kaupmannahöfn. Ekki frá því að þetta hafi verið bestu tónleikar sem ég hef séð. Hann toppaði meira að segja Rosenwinkel og þá er mikið sagt. Yndislegur gítarleikari sem er gjörsamlega í trans þegar hann spilar. Sat fremst við sviðið með Krissa og vorum við eins og unglingar á rokk tónleikum. Frábært alveg...


föstudagur, júlí 07, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)










