föstudagur, nóvember 11, 2005

Bill Frisell og Brad Mehldau

Ég verð aðeins að minnast á þessa tónleika sem ég sá síðustu daga. Fyrst ber að nefna Bill Frisell tríó sem auk hans var skipað fiðlustúlku og lapsteel gítarleikara. Ég ætla að spila á svoleiðis ef ég endurfæðist í Nashville. Tónleikarnir komu skemmtilega á óvart. Ekki vegna þess að ég átti ekki vona á góðum hlutum frá Frisell heldur vegna þess að eingöngu voru leikin Bítlalög.



Ég sem hélt að ekki væri hægt að toppa þessa tónleika en það tókst Brad Mehldau næstum því. Ég ætla svosem ekki að gera upp á milli þeirra en hér var um frábært tríó að ræða. Mehldau hlýtur bara að vera með betri píanóleikurum í dag.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

*öfund*

Sigurður sagði...

Engin ástæða til. Þú ert nú svo stór og hefur séð svo margt!!!

Siggidóri sagði...

*slef*

Sandra sagði...

Bloggaðu siggi, bloggaðu!

Nói sagði...

Ég tek undir með systur vorri!

Nafnlaus sagði...

Kannski ættirðu að vingast við þessa menn og fá þá til að flytjast til Íslands. Þeir gætu kennt við F.Í.H. og spilað á Múlanum og svona.