föstudagur, nóvember 04, 2005

Hitt og þetta og alls ekki neitt!

Búið að vera ósköp rólegt þessa vikuna. Það var vetrarfrí í skólanum þannig að ég hef haft nógan tíma til að æfa mig. Mér finnst ég virkilega hafa komist í gang með æfingarnar þessa vikuna. Búin að vera meira og minna í skólanum frá morgni til kvölds og er bara ansi ánægður með það. Á morgun fer ég til bróðir míns í Osló og spila þar í kirkjunni á sunnudaginn. Næst fáið þið fréttir af tónleikum Bill Frisell og Brad Mehldau og gott ef ég verð ekki komin með nýja íbúið. Bless í bili.

Engin ummæli: