Ég sé að einhverjir eru farnir að kvarta yfir því að ég hafi ekki bloggað í nokkra daga. Ég hef síður nennt því þar sem að ég er ekki með netið heima og kem ekki til með að hafa það fram að jólum.
Síðustu helgi skrapp ég til Oslo til þess að hitta foreldra mína og að sjálfsögðu bróðir minn og fjölskyldu. Alltaf notalegt að hitta fjöldskylduna, borða góðan mat og slappa af. Ég er að átta mig á því að núna er bara mánuður þangað til ég kem heim í jólafrí. Það verður gaman að koma heim og hitta alla vini og kunningja. Aldrei að vita nema ég spili einhverja tónleika með Autoreverse og Malus. Annars er alltaf nóg að gera. Er í hinum og þessum böndum sem fara vonandi að snapa einhver gigg. Eitt af þessum er svona popp/grúv með söngvara sem heitir Janne. Hann er svartur og er með svona ekta Stevie Wonder rödd. Erum að spila m.a. Stevie Wonder lög og allskonar lög í svipuðum stíl ásamt frumsömdu efni eftir Janne.
Lífið er lag...
föstudagur, nóvember 18, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Kúl töff kúlkúl töff!
vittu spilame merr!
já!!!!Endilega. Ætlarðu svo að bjóða mér í nýju íbúðina þína!!
Vonandi halast inn einhver gigg. Sakna þess að spila (með ykkur báðum reyndar) ... talandi um íbúðir ... :)
Skrifa ummæli