Nú má segja að það sé í raun og veru komin vetur hér í Gautaborg. Það er allavega skítkalt!!! Sérstaklega seint á kvöldin. Heppilegt að ég er alltaf svona vel klæddur eða þannig.
Um helgina fór ég út að borða á þessum fína kínverska veitingastað með Krissa, Moritz og Nikka og Sigrúnu. Margir muna kanski eftir Moritz af myndum úr innflutningspartíinu í Kviberg. Hann er allavega hressasti þjóðverji sem ég hef nokkurn tíman hitt. Næsta föstudag ætlum við Moritz að halda saman risa partí í íbúðinni minni. Jibbíííí!!! Eins og flestir þjóðverjar þá hefur hann gaman af því að skipuleggja og verður því örugglega boðið upp á eitthvað skemmtilegt.
Nú tókst loksins að setja hér saman íslenskan barnakór og var ég með fyrstu æfinguna um helgina. Mér líst mjög vel á þetta. Ótrúlega duglegir krakkar. Ég tók mig til og útsetti jólalag í tveimur röddum sem við munum jafnvel flytja á jólaballi Íslendingafélagsins. Fínt tækifæri til að æfa sig í að útsetja aðeins fyrir kór.
mánudagur, nóvember 21, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
djöfulsins fokking snillingur ertu drengur. Hlakka til að sjá þig um jólin. Fáum okkur öllara...
...ég sé þetta fyrir mér eins og svona lítill "Búðardalur"....tókst loksins að ná saman barnakór og þú útsettir tveggja radda lag fyrir þau...sem er frábært, en þetta er svona eins og lítið samfélag inni í stóru samfélagi, nema hvað Búðardalur er lítið samfélag í stórri auðn...eða náttúru og einn daginn tókst að setja saman lúðrasveit....er samt alveg nokkuð sannfærð um að þessi barnakór sé með betri hljóm en blessuð lúðrasveitin sáluga. ...enda varst þú ekki í henni..hehehe
Hehehe! Skemmtileg pæling Ingrid!
Skrifa ummæli