þriðjudagur, janúar 06, 2009

sunnudagur, ágúst 10, 2008

Norðurleið

Þann 31. júlí kvaddi ég Ítalíu og hélt beinustu leið til Basel í Swiss. Þar dvaldi ég hjá vini mínum Kasper og æfði með hljómsveitinni Heart of the Machine.

Á þessari 800 km leið í bílnum hugsaði ég um dvöl mína á Ítalíu. Blendnar tilfinningar eins og oft er þegar maður flytur úr einu landi í annað.

Fyrstu mánuðina var erfitt að kynnast fólki. Sérstaklega þar sem flestir Ítalir tala litla eða enga ensku.

Ég fór á tveggja mánaða Ítölskunámskeið og þar gafst tækifæri til þess að kynnast öðrum útlendingum. En á Ítalíu langaði mig til að kynnast Ítölum og tók því lítin þátt í stúdentalífinu þar.

Í staðin æfði ég mig á klassískan gítar. Hafði frábæran kennara og sökkti mér námið.

Bílnum mínum var stolið og ég varð paranoid um að öllu væri stolið steini léttara á Ítalíu.

Í íbúðinni sem ég var í fyrst voru eingöngu stúdentar sem voru á Ítalíu í einn eða tvo mánúði til að taka námskeið. Það voru því endalaus partí í húsinu og lítið næði fyrir mig til að æfa mig.

Eftir jól skipti ég svo um íbúð. Frábær íbúð með sér svefnhverbergi og stofu, frábærum svölum og meira að segja frábærum bílskúr. Ég saknaði því bílsins míns meira en áður. Mánuði síðar fanst hann svo yfirgefin fyrir utan matvöruverslun á Norðu Ítalíu. Víííííhúúúúú, bílinn var komin aftur.

Eftir þetta fór ég að spila jazz með nokkrum strákum í Perugia og hanga með nokkrum úr klassíska gítarnáminu. Þannig að ég fór loksins að eignast vini.

Eftir það var ég mjög sáttur. Farin að tala góða ítölsku og hékk með ítölsku vinum mínum þannig að ég gat upplifað hvernig lífið er á Ítalíu í gegnum þá.

Ítalir hafa það gott þó þeir kvarti oft undan hlutunum. Ávextir og grænmeti vex nánast af sjálfum sér og er betra en flestum öðrum stöðum.

Matur og vín er eins og það gerist best. Ítalir hafa gaman af því að elda góðan mat heima sem og að fara út að borða. Það eru alls staðar góður veitingastaðir sem notast við fersk, lókal hráefni.

Ég fór svo í 10 daga ferðalag um Ítalíu með kærustunni minni. Þetta var einn af hápunktum ferðarinnar. (Sjá myndir frá síðustu færslu).

Mestu vonbrigðin voru hins vegar hversu lélegur standard er á jazzi og annari impróvíseraðri tónlist. Ég spilaði í húsbandi á Umbria jazz þar sem haldin voru jam session. Þar komu margir nemendur frá allri Ítalíu sem voru á hátíðinni til að sækja námskeið frá Berklee (Boston). Það kom mér á óvart hvað það voru fáir góðir jazzspilarar.

Ég er því mjög fegin að vera komin aftur á norðurslóðir og get haldið áfram að byggja upp ferilinn með þeim góðu spilurum sem ég spila með hér. Þegar hinsvegar kemur að því að halda suður á bóginn í sumarfrí þá verður Ítalía pottþétt oft fyrir valinu.

mánudagur, júlí 07, 2008

Á ferðalagi um draumalandið

Abruzzo - Puglia - Basilicata - Sicilia - Campania


























mánudagur, júní 23, 2008

Ferðalag

Á miðvikudaginn hefst ferðalag mitt og Línu um Suður Ítalíu. Mig hlakkar ekkert smá til enda þvílíkt fallegt veður núna alla daga.

Það skemmtilega við Ítalíu er að hvert sem þú ferð er svo mikil saga og hefð. Hvert svæði hefur sinn einstaka matarkúltúr, sem byggir á áralangri hefð og þeim hráefnum sem fáanleg eru á svæðinu.

Eftir að ég sæki Línu í Róm höldum við yfir á austurströndina með nokkrum stoppum í Abruzzo héraðinu.

Við ströndina liggur Puglia með 800 km strandlengju og einhver fallegustu svæði Ítalíu. Áhrif frá Grikklandi, Spáni og Tyrklandi. Svæðið er frægt fyrir matargerð og Ítalir kalla La Cucina Povera eða matargerð hinna fátæku sem er í raun langt frá því að vera fátækur matur því á svæðinu er endalaust af grænmeti, ávöxtum og jurtum.

Svo er vonandi að ég geti langt inn nokkrar myndir síðar...

miðvikudagur, júní 18, 2008

ítalía - Frakklandi 2-0

Ég hef nú aldrei verið mikið fyrir fótbolta og hef verið á þeirri skoðun að það sé fáranlegt að hlaupa fram og tilbaka til þess eins að sparka í bolta.
En nú er orðin breyting á því að Ítölum hefur tekist að gera mig að fótboltaaðdáenda. Í gær fór ég eins og vanalega með vinum mínum þeim Fabio og Fabio að horfa á leikinn. Eftir tvo slæma leiki þá komust Ítalir loksins í gang og þar sem Hollendingar sigruðu Rúmena var ljóst að Ítalía færi áfram. Það var því ekki að spyrja að stemmningunni pöppnum þar sem horft var á leikinn.
Áfram Ítalía!!!

mánudagur, júní 16, 2008

Nýtt númer enn á ný!

Það er náttúrulega öllu stolið steini léttara á Ítalíu og þar á meðal símanum mínum.
Var sem betur fer verðlaus og ég svo heppin að vera með öll númerin mín spöruð á tölvunni.

Nýja númerið mitt er: +39 331 9474427.

þriðjudagur, júní 03, 2008

Á ferð og flugi

Búin að vera tvær vikur í Svíþjóð við að undirbúa lokatónleika. Setti tvö lög frá tónleikunum á myspace og eitt myndband.

Að því loknu var haldið til Eistlands þar sem ég spilaði á lokatónleikum Línu. Nú er ég svo aftur komin til Ítalíu til að njóta sumarsins en því miður þá er tekið á móti mér með brjálaðri rigningu. Vona að það bætist úr því fljótlega.

föstudagur, maí 02, 2008

Svosem lítið að frétta hérna megin. Sól og blíða.

Búin að flytja eldúsborðið út á svalir og borða því morgunmat í sólinni.

Er algjörlega komin upp á lagið með það að borða bara sætindi í morgunmat og kaffi með því.

Í hádeginu bý ég mér yfirleitt til einhvern pastarétt, t.d. pasta Carbonara eða pasta með hinni frægri blöndu af tómmötum og pesto.

Á kvöldin er voðalega notalegt að fá sér kjöt. Hér er mikið úrval af alskonar sneiddu kjöti sem einfalt er að skella á pönnuna.


Eftir tvær vikur fer ég til Gautaborgar og þar taka við strangar æfingar.
Fyrsta lagi þarf ég að undirbúa lokatónleikana mína. Svo er Lína með tónleika sem ég tek þátt í og svo spila ég reyndar með henni á öðrum dúo tónleikum. Þannig að það verður mikið um æfingar í góðum félagskap.

Svo verður haldið með fríðu föruneyti til Eistlands þar sem Lína heldur lokatónleika sína frá Akademíunni í Tallinn. Svo verður örugglega með húllumhæ eins og venjan er þegar haldið er í þessa stórkostlegu borg.

fimmtudagur, apríl 24, 2008

sunnudagur, apríl 20, 2008

Sól og blíða

Í dag er yndislegt veður í Perugia. Logn, sól, 25 stiga hiti og sumarilmur í loftinu.
Á dögum sem þessum virðist lífið svo bjart og áhyggjulaust. Ekki nema vona að Ítalir séu svolítið rólegri á því en við Norðulandabúar. Vinna er ekki það sem skiptir mestu máli í lífinnu að þeirra mati. Kannski ekki svo vitlaust!

Ég kem til með að flytja til Stokkhólms í haust. Gaman að vera áfram í Svíþjóð og fara jafnframt í stærra umhverfi. Lína komst inn í tónlistarháskólann og mun því hefja nám þar. Ég mun hinsvegar byrja að vinna og einbeita mér af því að búa til tónlist. Spila og kenna. Ég er hæstánægður með þessa ákvörðun og spenntur fyrir því að flytja.

fimmtudagur, apríl 17, 2008

og svo...

Hver man ekki eftir Autoreverse?
Farið endilega inn og add-ið ykkur...

miðvikudagur, apríl 16, 2008

Heart of the machine

Jæja þá er þetta fína íslenska/norska/svissneska band komið með myspace síðu.

laugardagur, apríl 12, 2008

Hhhmmm...

Svosem ekki mikið um að vera þessa dagana. Æfi mig á klassískan gítar og skrifa tónlist.

Mig langar til þess að minnast á útskriftartónleikana mína. Er ég búin að setja saman hóp útlendinga (þ.e. non Svíja) sem spila með mér:

Pauli Lyytinen - saxófón
Joonas Kuusisto(aka. Jonttu) - bassa
Øyvind Hegg-Lunde - trommur

Tónleikarnir verða föstudaginn 23. maí í Ensambelsalen, Artisten.

Góða skemmtun!

föstudagur, apríl 04, 2008

Útilega

Fyrsta útilega sumarsins var óvenju snemma þetta árið. Við Lína fórum í smá ferðalag til Bologna, skoðuðum borgina og tjölduðum. Á leiðinni til baka fórum við til Rimini og löbbuðum um strandlengjuna sem er með stórum hótelum svo langt sem augað sér. Ekki hægt að kvarta yfir veðri þar sem var rúmur 20 stiga hiti og sól allan tíman.

Kíkjið endilega á myspace síðuna mína. Þar er að finna nokkrar upptökur, þar á meðal glænýtt lag með dúet okkar Línu tekið upp í gær.

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Svíþjóð hér kem ég!

Á morgun fer í ég í heimsókn til Svíþjóðar í fyrsta skipti eftir að ég kom til Ítalíu. Mikið tilhlökkunarefni.

Þar er auðvitað Lína sem mig hlakkar mig til að sjá. Er þetta lengsta tímabil sem við höfum verið fjarri hvort öðru. Hefur samt gengið vonum framar og ekki hægt að segja annað en að við séum bara nokkuð góð í þessu.

Í Gautaborg einnig mikið af góðu fólki og góðum vinum sem mig hlakkar til að hitta.
Einnig kem ég til með að vinna með nýju bandi sem samanstendur af norska trommuleikaranum Öyvind og svissneska bassaleikaranum Kasper. Stendur til að æfa nýtt efni sem þeir félagar hafa verið að undirbúa og svo verður keyrt á tónleikaferð í Sviss næstkomandi september.

mánudagur, febrúar 11, 2008

Úr eldhúsinu

Hef verið að prófa mig dálítið áfram með eldamennsku að ítölskum hætti.

Uppáhaldsrétturinn þessa dagana:

Þunnsneitt nautakjöt með Balsam ediki.

Kjötið er léttsteikt á pönnu, bætt við balsam ediki, feskri rósmarín og hvítlauk.
Balsam edikinu er helt yfir kjötið áður en það er borið fram og það loks saltað og piprað eftir smekk.

Þessi dýrendis réttur er ekki óætari en það að hann hefur verið í matin á mínu heimili þrjá daga í röð. Ágætis Atkins kúr ef það væri ekki fyrir allt pastað.

Að ítöslkum hætti þá er byrjað á salatinu sem forrétti. Til að fullkomna salatið er góð dressing sem er blanda af ólífu olíu, balsam ediki og hunangi. Því á eftir fylgir svo pasta með hökkuðum tómötum og loks kjötið sem annar réttur.

Að því loknu má svo ekki gleyma að fullkomna máltíðina með "dolce" og bolla af espresso.


Bara svona smá innsýn inn í daglegt líf okkar Ítala.

Ciao...

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Lífið á Ítalíu!

Verð að viðurkenna að mikil bloggleti hefur verið í gangi. Það er eins gott að ég skrifi eina færslu snarlega svo þetta deyi nú ekki algjörlega út.

Fyrst má nefna það að síðustu viku hef ég fengið tvær góðar heimsóknir. Fyrst kom Tryggvi og svo kom Pauli. Þetta var gott tækifæri til að prófa nokkra veitingastaði, fara út á lífið og taka túristapakkann í Perugia. Óhætt að segja að hvorki ég né mínir gestir hafi verið fyrir vonbrigðum.
Frábær matur og vín og margt að sjá. Má þar nefna minjar frá Etrúskum sem er frá því fyrir Krist, minjar frá Rómverjum og byggingar frá miðöldum sem eru í meirihluta í miðbæ Perugia.

Fyrstu þrír mánuðirnir hafa farið í að læra ítölskuna. Ég ákvað að taka þetta föstum tökum í byrjun og tók tvo mánuði í ítölskunámskeið. Ekki hefur gefist tími fyrir margt annað en núna hef ég lagt niður enskuna hér og get spjallað þokkalega um daginn og veginn á ítölsku. Til að lyfta mér upp horfi ég gjarnan á ítalskar bíómyndir.

Svo er það stefnan sem í hef tekið í tónlistarnáminu hér en ég ætla að fara betur út í það síðar...

þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg jól í útlöndum

Er búin að hafa það ótrúlega gott síðustu daga hjá systur minni og fjölskyldu í Lúxemburg ásamt foreldrum mínum og Línu.

Hér er ótrúlega jólalegt. Kalt, stillt og þakið hvítri fönn. Gaman að hitta alla. Frændsystkin mín hafa stækkað mikið frá því fyrir rúmu ári síðan þegar ég hitti þau síðast.
Alma, 5 ára frænka mín, kallar mig ennþá Sigga sæta og stundum Sigga trúð eftir að ég leyfði henni að greiða hárinu mínu þannig að það stóð beint upp í loft. Hún hló mikið af mér enda sérstaklega glaðlegur krakki sem alltaf er brosandi og hlæjandi.
Það var gaman að fylgjast með Tómasi litla frænda mínum opna pakkana með stórt bros á vör.
Emelía hefur líka fullorðnast mikið. Alltaf gaman að spjalla við hana. Hún kom mér inn í facebook og ég hjálpaði henni að setja upp tónlistarforritið Reason.

Á morgun fer ég aftur til Ítalíu og verð nokkra daga ásamt Línu í Torino hjá systur hennar og fjölskyldu.

föstudagur, nóvember 30, 2007

I dag er eg tuttugu og sjo ara gamall. Eldri og vitrari en i gaer.

I gaer var prof i itolskunaminu. Gekk mjog vel og i januar aetla eg ad halda afram og taka einn manud i vidbot. Vaeri gaman ad halda afram med sama bekk i desember en nu verd eg ad gefa mer meiri tima fyrir tonslistarnamid.

I morgun var sidasti timinn og eg maetti med Coca Cola og Croissant (it. cornetto) og helt sma afmaelisveislu med bekknum.

Liina kom i heimsokn i november og var hja mer i tvaer vikur en thurfti ad fara aftur til Svithjodar fyrir viku sidan. Thad er tomlegra i kotinu an hennar og a afmaelisdeginum sakna eg hennar og vina minna.

En a morgun er eg bodin i mat heima hja vini minum Saiful sem er fra Bangladesh. Thar verdur matur med fjolskyldu hans her, thad er brodir hans, eiginkona brodur hans og barn.

föstudagur, nóvember 16, 2007

Università per Stranieri!

Fyrir tveimur vikum byrjadi eg i itolskunami i haskolanum. Stifur pakki! Timasokn 20 stundir a viku + heimanam. Farid er hratt yfir efnid thannig ad madur er daudthreyttur eftir daginn. Thratt fyrir thad er mjog gaman ad laera itolsku. Er lika mjog anaegdur med kennarana sem eru tvaer glaesilegar italskar konur a midjum aldri. Alltaf serlega elegant til fara, i haum stigvelum, pilsi og med stora eyrnalokka. Eldhressar, tala hatt og hlaeja mikid.

Nemendur i hopnum eru hedan og thadan. Laeknanemi fra Pollandi, nokkrir Afganar, nunna fra Indlandi, Kinverjar, Japanir. Hress kona a midjum aldri fra Washington sem hefur gaman af thvi ad spjalla. Einnig folk fra Brasilu, Afriku, Israel, Palestinu, Bangladesh og Astraliu. Skemmtilegt og ahugavert folk. Margir i hopnum eru duglegir ad vinna heima. Verda ad laera itolsku til ad geta sott um nam i haskolanum.