fimmtudagur, september 29, 2005

Ég fekk gigg!

Vei!! Fyrstu giggin eru í höfn. Ég mun spila í messu fyrir Íslensku kirkjuna í Osló þann 6. nóvember. Sérstaklega ánægjulegt þar sem bróðir minn býr þar og ég get því heimsótt hann í leiðinni. Svo mun ég einnig spila á listasafni sem heitir Röhska Museum þann 22. október með jazztríói. Vonandi er þetta það sem koma skal...

Annars mætir Tryggvi Lárusson, æskuvinur minn, til Gautaborgar á morgun. Hann kemur um þrjú leitið og verður dreginn beint á After work. Síðan verður haldið á Tyghusvägen þar sem við Sandra stöndum fyrir rosalegu innflutningspartí. Svo ætla ég að fara með drenginn í skoðunarferð á laugardaginn. Það verður eflaust farið í smá siglingu og kíkt í Liseberg. Allavega mjög skemmtileg helgi framundan.

Engin ummæli: