fimmtudagur, september 08, 2005

Sofnaði á Brötz

Skemmtilegt kvöld í gær. Krissi kom í mat til okkar. Alltaf ánægður að koma í pössun á Tyghusvägen. Síðan fór ég með strákinn á tónleika á Brötz. Hljómsveit húsins hóf leikinn og svo var aðalnúmerið tríó sem samanstóð af trompetleikara, gítarleikara og trommuleikara. Þetta greip mig ekki betur en það að mér tókst að sofna á miðjum tónleikunum. Var eitthvað óvenju þreyttur. Kannski að bjórinn og rauðvínið hafi haft einhver áhrif, ég skal ekki segja. Ég var miður mín yfir þessu atviki og skammaðist mín. Krissi sagði hins vegar að það hafi litið út fyrir að ég væri að hlusta af mikilli innlifun. Þarna slapp ég fyrir horn...

3 ummæli:

Siggidóri sagði...

mwuahahahaha.... hressandi ...! Strák greyið.... sybbinn! ;-)

Nafnlaus sagði...

var ekki málið að þú gleymdir 1 lítra úr daglega kaffiskammtinum..... skiptir honum út fyrir lítra af rauðu?

Nafnlaus sagði...

Þú skalt ekki halda að þú munir ávallt sleppa fyrir horn. Þú munt brenna þig á endanum. Þú munt brenna þig.