Í gær fóru ég á ansi skemmtilegan tónleikastað sem heitir Brötz. Hann gefur sig út fyrir að vera aðalega free jazz staður en það er svosem ýmislegt spilað þar. Hilmar Jensson spilaði þar í fyrra með tríóinu sínu. Í gær sá ég ansi magnaðan dúett með trommuleikara og söngkonu sem er meira að segja par sem skemmir auðvitað ekki fyrir. Þetta kom rosalega vel út hjá þeim, alveg stórskemmtilegt. Eftir tónleikana fórum við svo nokkur á pöbb. Þar á meðal félagi minn Pauli, sem er finnskur skiptinemi. Hann er búin að biðja mig um að vera með sér í free hljómsveit ásamt norskum skiptinema frá Osló sem heitir Jo og trommuleikaranum sem lék á þessum tónleikum sem heitir Andreas. Hér er því um samnorræna hljómsveit að ræða. Pauli vill svo endilega að við förum til Finnlands og spilum nokkra tónleika þar. Örugglega mjög gaman ef af því verður. Eins og sannur Finni þá var Pauli mjög öflugur í drykkjunni. Hann pantaði gjarnan tvo bjóra í einu og var helmingi fljótari að drekka en við hin fyrir utan það að hann var greinilega búin að skjóta á sig þegar ég hitti hann fyrir tónleikana. Kvöldið endaði svo þannig að ég var einn eftir með honum og var svo ekki komin heim fyrr en klukkan þrjú. Var svo auðvitað að deyja úr þreytu í skólanum í morgun...
En nú fer ég að leggja í hann til Osló til að heimsækja minn kæra bróðir.
Bless í bili...
fimmtudagur, september 01, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Skuggalegt líferni á þér þarna í útlandinu.....
-Sandres
Skrifa ummæli