þriðjudagur, september 13, 2005

Kirkjunar störf

Næstu helgi hefjum við störf okkar hjá íslensku kirkjunni í Gautaborg. Um er að ræða annars vegar að stjórna íslenskum barnakór og hins vegar að hjálpa til í kirkjuskólanum við undirspil og annað. Ég fór í dag og fjárfesti í kassagítar fyrir kirkjuna sem ég kem til með að nota þar. Í tilefni dagsins birti ég hér mynd af gítarnum og hljóðdæmi . Það er tekið upp í eldhúsinu mínu með innbyggða hljóðnemanum á makkanum mínum. Ef vel er hlustað má heyra tölvuna mala og ýmis önnur aukahljóð...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kjempefint!!