Ég hef ákveðið að þessu sinni að velja mann vikunnar og er það engin annar en finnski skiptineminn Pauli Lyytinen. Þennan heiður fær hann fyrir að hafa ótrúlega hvetjandi áhrif á mig. Hann æfir sig 8-12 klukkustundir á hverjum degi og semur í leiðinni 2-3 lög. Það er honum að þakka að í dag æfði ég mig frá tvö til miðnættis.

Þetta er annars búin að vera frábær helgi. Fór í partí í gær og afrekaði það að borða hálfan ferskan hvítlauk. Mæli ekki með því, það var ótrúlega vont. Fékk geðveikan verk í eyrun og í magann á eftir. Hvað kom til? Jú þetta byrjaði þannig að Moritz var eitthvað að mana mig í einhverskonar keppni. Venjulegum lauk var skipt í tvennt og svo áttum við að borða hann án þess að tárast. Við gerðum það báðir með léttum leik. Síðan var einhver sem skipti hvítlauk í tennt. Við tókum báðir við honum en horfðum bara hvor á annan. Hvorugur okkar var tilbúin til að taka af skarið. Þá reif Pauli hvítlaukin af Moritz og skellti honum í sig. Ég gat auðvitað ekki verið minni maður og lék sama leik. Ekki reyna þetta heima krakkar mínir.
Í dag samdi Pauli lagið Vitlök með Siggi...
5 ummæli:
Hæ Siggi. Rakst á síðuna af algeri tilviljun. Gegnum síðuna hennar Fríðu ef þú veist hver það er :-) Allavegana þá ætlaði ég bara að kasta á þig kveðju. Er í næsta landi við þig (DK) að læra. Alltaf gaman að geta fylgst með gömlum hljómsveitar meðlimum úr hljómsveitinni "Gasp". Sá að Elmar er líka með síðu.
Kv,
Kiddi trommari
Vá! annar Kiddi trommari..
eníveis.. mér finnst ferskur hvítlaukur bara góður.
Gaman að þú skildir finna síðuna Kiddi. Ég þekki fríðu mjög vel. Hafðu það gott!!!
Eru 12 tímar á dag alveg málið? Vitlök med Siggi er samt brillíant nafn á lag :o)
Stefnir í bloggeymingjaskap? Skora á þig að skrifa um tvífara gærdagsins........
Sandur
Skrifa ummæli