fimmtudagur, september 15, 2005

Hvað er að gerast!

Á þriðjudaginn fórum við Sandra í bæinn með íslenska parinu í húsinu okkar. Þau heita Elín og Ragnar og eru mjög hress.

Hér má sjá mynd af þeim eftir bæjarferðina.


Á miðvikudaginn fórum við með Krissa á tónleika með þessum manni. Hann heitir Charles McPherson og spilar á saxófón. Ég tók ansi margar myndir af honum en hann virðist bara ekki geta verið í fókus.



Í gær gerðist sá undarlegi hlutar að klukkan eitt um nóttina hringdi í mig ung stúlka úr skólanum í miklu uppnámi. Afleiðingin var sú að þegar Sandra vaknaði í morgun svaf stúlkan í svefnsófanum hjá okkur. Hvað get ég sagt, það er gott að leita til mín á erfiðum tímum. Ég hef ekki enn komist að því hvað amaði að greyið stúlkunni eða hvers vegna hún leitaði til mín.

Á morgun verður svo farið á After work. Þýskur skiptinemi í skólanum á afmæli. Myndir birtar síðar...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já vertu nú duglegur að taka myndir í fjarveru minni... Ég er strax farin að sakna ykkar allra þarna úti... Sem er skrítið í ljósi þess að það er fínt að vera heima líka! Bið að heilsa krökkunum, hälsningar Sandur från Sverige talar frá Íslandi

Nafnlaus sagði...

Hey vá, þetta er enginn annar en Raggi úr Garðabænum, skilaðu kærri kveðju til hans!
Annars bið ég bara að heilsa ykkur, alltaf svo gaman að lesa útlandablogg, bisous!

Nafnlaus sagði...

what why how?

meira infó maður!

Nafnlaus sagði...

hvað, hvenær, hvernig, hverjir afhverju, hvaða, hvuð, hvörslags, ha?????

segi það nú mar .. meira infó