Undanfarið þá virðist ég ekki hafa sagt frá neinu örðu en tónleikum. Það er reyndar yndislegt allt þetta framboð af tónleikum. Ég má reyndar til með að segja ykkur frá tveimur öðrum sem ég er að fara á.
Þann 6. nóvember þegar ég spila í íslensku kirkjunni í Osló þá eru tónleikar þar um kvöldið með engum öðrum en gítarsnillingnum Bill Frisell. Þvílík heppni að hann skuli spila sama dag og ég verð þar. Ég er ekkert smá ánægður með það. Nú á ég bara eftir að reyna að sannfæra bróðir minn um að koma með.
Þann 8. nóvember mun ég svo fara á tónleika með Brad Mehldau tríó í Helsinborg sem er í u.þ.b. tveggja klukkustunda fjarlægð frá Gautaborg. Hópferð verður farin með rútu á þessa tónleika og verður m.a. góðvinur minn Kristmundur Guðmundsson með í för. Ég er eins og gefur að skilja mjög spenntur fyrir þessum tónleikum enda nýja platan hans frábær. Þar tekur hann m.a. Radioheadlagið Knives out og Bítlalögin Martha my dear og She's leaving home.
En þá að daglega lífinu. Í gær var ég í mjög skemmtilegu matarboði hjá Sigrúnu og Nikka. Ásamt okkur voru þar Krissi og tvær stúlkur sem búa í sama húsi og þau. Önnur þeirra er reyndar í skólanum með Sigrúnu. Ég endaði með því að missa af síðasta vagni og gista á dýnu hjá þeim. Það verður ekki þörf á því mikið lengur að stóla á sporgvagninn til að komast heim því að þann 7. nóvember mun ég flytja í nýja íbúð. Hún er á stærstu stúdentagörðum Gautaborgar í 10 mínútu göngufæri við skólann og miðbæinn. 42 fermetrar, með eldhúsi og svölum. Engin smá lúxus. Nú er bara að passa på og koma í heimsókn. Ég hélt lengi vel að þessi frasi þýddi að passa sig og olli það þó nokkrum misskilningi. Þetta þýðir í rauninni kýldu á það, sem er nokkuð fjærri því sem ég hélt...
föstudagur, október 28, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
*Stórt öfundar andvarp* .. snilld að komast á tónleika með öllum þessum frábæru listamönnum. .... og það er ekki einu sinni sérstök "hátíð" í gangi ... !
stór fugl sagði mér að skemmtanalífið væri orðið ansi mikið hvísl í skæðunni hann Sigga í Sverige.
Martha my dear.... undarlegt lagaval verð ég að segja... það er samt líklega ekki erfitt að gera það betra en það er í upprunalegu útgáfunni! ;o)
Til hamingju með nýju íbúðina, hljómar mjög vel!
Útgáfan hans Brad á Exit Music er mest spilaða lagið í tölvunni minni. Algjör snilld........ætla að verða eins og hann einn daginn....já eða Oscar já eða kannski Keith.....eða bara......eitthvað :) Kærar kveðjur frá Búðdælingnum
Veistu Siggi om du vill hångla, passa på! passa på!
Veit ekki með skemmtanalífið Nói. Það er reyndar ansi mikið framboð af skemmtunum hér en það er auðvitað um hámennigarlega viðburði að ræða ;)
Exit music með Mehldau er snilld. She's leaving home af nýja disknum hans er í miklu uppáhaldi hjá mér núna.
Well of course ;)
Skrifa ummæli