mánudagur, október 24, 2005
Skyndiákvörðun
Ákvað á síðust stundu að skella mér á tónleika með Chick Corea ásamt hljómsveit Paco De Lucia í Konserthuset. Var svo heppin að það var sæti laust á fremsta bekk beint fyrir framan flygilinn. Þvílík heppni, annars hefði ég þurft að vera lengst uppi eða lengst til hliðar. Þetta voru alveg þvílíkt flottir tónleikar. Engin smá latinsveifla hjá bandinu sem var skipað trommuleikara, bassaleikara, slagverksleikara, saxófón- og þverflautuleikara ásamt Chick á píanó og rhodes. Þeim var vel fagnað í lokin og ætlaði allt að verða vitlaust þegar þeir tóku Spain sem uppklappslag. Ég sá sko ekki eftir því að hafa skellt mér.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
*Andvarp* lucky bastard! ;)
Skrifa ummæli