Um helgina fór ég með íslenska prestinum í Gautaborg og Sigrúnu, sem er með mér í sunnudagaskólanum, út á land með íslensku fermingarbörnin í Svíþjóð. Þar hittum við síðan norsku fermingarbörning og vorum því allt í allt yfir þrjátíu manns. Ótrúlega fallegt og gott veður í sænskri sveit. Vorum í timburhúsi við vatn með skóg allt í kring. Logn, 20 stiga hiti og sól alla helgina. Ekki alveg veðrið sem maður er vanur í október. Í ferðinni vorum við með kennslu, leiki, sundferð, kvöldvöku, fjöldasöng og margt fleira sem tilheyrir svona fermingarbúðum. Mjög skemmtileg ferð með skemmtilegu fólki. Toppurinn fannst mér að fá svona frábært veður. Lögðum svo af stað heim um hádegi í dag og mættum beint í sunnudagaskólann. Þetta var semsagt löng vinnuhelgi.
Í öðrum fréttum er það að eftir miklar pælingar keypti ég mér gítarmagnara. Ég var búinn að spá í því að láta senda magnarann minn hingað en þá hef ég engan magnara þegar ég kem heim um jólin eða næsta sumar. Ég fór í allar gítarbúðir í Gautaborg og prófaði fjöldan allan af Fender og Vox mögnurum. Magnarinn sem mér fannst lang bestur var engin annar en Bítlamagnarinn
Vox AC30. Bresk gæðavara. Ótrúlega flott sánd og ekki skemmir fyrir að hann er líka mjög flottur. Mikil hamingja með þannan grip.
3 ummæli:
Takk fyrir frábæra fliss helgi - fjórtán ára að fríka út í flissinu mun von bráðar koma út í heild sinni ;)
Sigrún ligrún
Til lukku með magnarann!! :)
Þetta eru miklar fréttir, ég er náttúrulega mest imponeraður af því að þetta er aðalmagnari Brian May í gegnum árin, með svona magnara og heimasmíðaða gítarnum sínum náði hann þessu einkennandi sándi sem hann hefur. Svo var hann einn af þeim fyrstu sem notaði delay af einhverju viti. Margir hafa fordóma gegn Queen og þekkja ekki elstu plöturnar sem eru brilliant. Ég skora á alla sem þykjast fíla rokk (kannski of margir jazzarar í publicum Sigga) að tékka á Brighton Rock af plötunni Sheer Heart Attack frá '74 þar sem BM notaði 3 Vox AC30 magnara með tape delay (engar tölvur)í sólókaflanum og bjó til eitthvað alveg nýtt.....!!!
Skrifa ummæli