þriðjudagur, október 04, 2005

Steve Vai!

Á fimmtudaginn fer ég á tónleika með gítarhetjunni Steve Vai. Fyrir þá sem ekki þekkja til kappans þá er þetta einn mesti shreddari allra tíma. Hann hefur eflaust slegið ansi mörg hraðamet í gítarleik. Sannkallaður íþróttamaður það!!! Hann hefur m.a. annars spilað með Frank Zappa og Whitesnake.
Ég veit það fyrir víst að þeir eru nokkrir kennarar í GÍS sem eiga eftir að dauðöfunda mig.

Eins og sannri gítarhetju sæmir þá hugsar hann vel um útlitið og hárið. Takið eftir smekklegu útlitinu!!!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ!
Sá að þú værir eins og svo margir aðrir farinn að blogga, leyfði mér að skoða nokkrar myndir í leiðinni. Gangi ykkur vel í Svíþjóð! :)

geimVEIRA sagði...

Jii.. ég hélt að þessi gaur væri eitthvað að grínast þegar ég sá mynd af honum í gegnum berklasíðuna.

Þvíííílíkt look!

Siggi.... sléttujárnið og kökumeikið!!!

geimVEIRA sagði...

Ekki missa af Chick Corea síðan....

24.okt held ég!

Sigurður sagði...

Það minnir mig á það. Verð að fara að kaupa miða á Corea...

Nafnlaus sagði...

Ooo. Mig langar að kaupa miða á Chick Corea. Eða, mig langar kannski ekkert endilega að *kaupa* miðann en ég væri alveg til í að fá hann bara.