mánudagur, október 17, 2005

Kólnar í veðri

Nú er heldur farið að kólna hér í Gautaborg. Fínt veður á daginn, svona 10-15 gráður, en það er orðið ansi kalt snemma á morgnana og seint á kvöldin. Þá þýðir náttúrulega ekkert annað en að fara snemma að sofa og vakna seint.

Fór í bíó í gær með Pauli, fórum á Charlie and the Chocolate Factory. Verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið bókina en mér fannst myndir alveg frábært. Hló mjög mikið. Skemmtileg tónlistaratriði og umhverfi.

Annars er ég byrjaður að undirbúa 20 mínútu sóló tónleika sem ég á að halda í skólanum í byrjun desember. Fyrsta skipti sem ég mun spila svona lengi einn. Er að semja stykki að þessu tilefni, sem mun einnig innihalda einhvern spuna. Mjög skemmtilegt og spennandi verkefni. Af öðrum æfingum þá er ég búin að vera að "pikka" upp sóló á fullu eða planka eins og Svíjarnir kalla það. Hef eiginlega ekki gert það af viti mjög lengi. Það er líka mjög gaman. Er m.a. búin að pikka upp sóló eftir Chet Baker, Pat Martion og Peter Bernstein. Getur tekið ansi langan tíma að ná að spila það vel með disknum. Held hreinlega bara að það sé hægt að læra heilmikið af þessu.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvaða dagsetning er komin á þessa tónleika?

Sigurður sagði...

12. desember minnir mig

Nafnlaus sagði...

Er meiri áhersla á 50's jazz eða 60's eða eitthvað þarna?

Sigurður sagði...

Þetta er allt saman voðalega opið. Fer algjörlega eftir því hvað maður sjálfur vill. Þeir eru ansi hrifnir af "modern" jazz svo sem "ECM jazz" og free.

Nafnlaus sagði...

talandi um jass þá biðja Harðhausarnir að heilsa...

zven...

Sigurður sagði...

Takk fyrir það ;)