Í gær spilaði ég með svo kallaða mánudagssamspilinu mínu. Á tónleikunum spiluðu alls sex samspil og voru tvö lög á hvert band. Þetta gekk bara mjög vel, við spiluðum eitt lag eftir mig og eitt eftir Pauli. Það var mjög gaman að sjá öll hin samspilin því það voru svo margir sem maður hefur aldrei séð spila áður.
Lífið gengur sinn vanagang, er svosem ekki að gera mikið annað þessa dagana en að sinna skólanum. Búin að vera að æfa dálítið mikið undanfarið með hinum og þessum m.a. fyrir tónleika sem ég er að spila með tríói á laugardaginn. Tónleikarnir byrja kl. 15.00 og eru í Röhsska museet fyrir þá sem vilja skella sér til Gautaborgar á tónleika...
miðvikudagur, október 19, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Er frír bjór?
Ef bjórinn er frír þá kem ég. Ég er að spara.
Ég veit það bara ekki, þú verður bara að taka sénsinn.
kreisí tónleikar ;)
Takk Sandra! Gaman að þú skyldir koma. Ég sá nú Dag hvergi...
Skrifa ummæli