Ég var rétt í þessu að versla í Netto hér í Gautaborg og var svona líka rosalega ánægður með verðið. Ég veit að margir hafa mikin áhuga á verðsamanburði og því ætla ég að gera grein fyrir verðinu í Nettó. Til þess nota ég hina þekktu og nákvæmu PPB einingu, þ.e. price per bag. Ég réð ekkert við mig í þetta skiptið og endaði með að versló þrjá fulla innkaupapoka. Fyrir þetta borgaði ég aðeins 303 sænskar krónur sem eru 2511 miðað við núverandi gengi (8,287). Með PPB formúlunni og aðstoð reiknivélar fáum við út 837 PPB sem þykir nokkuð gott á alþjóða mælikvarða. En nú kunna margir að spyrja sig hvað Siggi borði eiginlega í útlöndum og því fáið þið smá dæmi:

Þessi 20 stk. af 90 gr. hamborgurum keypti ég á aðeins 67 sænskar eða 555 ISK. Verði ykkur að góðu...
5 ummæli:
Gott að sjá að þú hafir ekkert breytt mataræðinu í útlöndum, kæri bróðir. Annars get ég vottað að það er gott að sjoppa í Svíþjóð, við norðmennirnir förum gjarnan yfir landamærin til að kaupa hamborgara og øl. Ég kýs þó heldur 200 gramma útgáfuna, meira Atkins! Þessi poki ætti þó að duga þér í 4-5 daga.
Sjáumst.
ef þú villt góðann borgar farðu þá á max ef það er til í G-borg.. er reyndar næstum viss að max er bara til fyrir norðan sthlm...
er þetta ekki bara svona "þynnt með sojakjöti" burgers ... amk er "ódýra" "kjötið" í Bónus á Íslandi þannig.
Ætlarðu að borða hamborgara að eilífu?
Þú kemur með restina af þessu heim um jólin og heldur matarboð, er það ekki?
Skrifa ummæli