föstudagur, maí 02, 2008

Svosem lítið að frétta hérna megin. Sól og blíða.

Búin að flytja eldúsborðið út á svalir og borða því morgunmat í sólinni.

Er algjörlega komin upp á lagið með það að borða bara sætindi í morgunmat og kaffi með því.

Í hádeginu bý ég mér yfirleitt til einhvern pastarétt, t.d. pasta Carbonara eða pasta með hinni frægri blöndu af tómmötum og pesto.

Á kvöldin er voðalega notalegt að fá sér kjöt. Hér er mikið úrval af alskonar sneiddu kjöti sem einfalt er að skella á pönnuna.


Eftir tvær vikur fer ég til Gautaborgar og þar taka við strangar æfingar.
Fyrsta lagi þarf ég að undirbúa lokatónleikana mína. Svo er Lína með tónleika sem ég tek þátt í og svo spila ég reyndar með henni á öðrum dúo tónleikum. Þannig að það verður mikið um æfingar í góðum félagskap.

Svo verður haldið með fríðu föruneyti til Eistlands þar sem Lína heldur lokatónleika sína frá Akademíunni í Tallinn. Svo verður örugglega með húllumhæ eins og venjan er þegar haldið er í þessa stórkostlegu borg.

fimmtudagur, apríl 24, 2008

sunnudagur, apríl 20, 2008

Sól og blíða

Í dag er yndislegt veður í Perugia. Logn, sól, 25 stiga hiti og sumarilmur í loftinu.
Á dögum sem þessum virðist lífið svo bjart og áhyggjulaust. Ekki nema vona að Ítalir séu svolítið rólegri á því en við Norðulandabúar. Vinna er ekki það sem skiptir mestu máli í lífinnu að þeirra mati. Kannski ekki svo vitlaust!

Ég kem til með að flytja til Stokkhólms í haust. Gaman að vera áfram í Svíþjóð og fara jafnframt í stærra umhverfi. Lína komst inn í tónlistarháskólann og mun því hefja nám þar. Ég mun hinsvegar byrja að vinna og einbeita mér af því að búa til tónlist. Spila og kenna. Ég er hæstánægður með þessa ákvörðun og spenntur fyrir því að flytja.

fimmtudagur, apríl 17, 2008

og svo...

Hver man ekki eftir Autoreverse?
Farið endilega inn og add-ið ykkur...

miðvikudagur, apríl 16, 2008

Heart of the machine

Jæja þá er þetta fína íslenska/norska/svissneska band komið með myspace síðu.

laugardagur, apríl 12, 2008

Hhhmmm...

Svosem ekki mikið um að vera þessa dagana. Æfi mig á klassískan gítar og skrifa tónlist.

Mig langar til þess að minnast á útskriftartónleikana mína. Er ég búin að setja saman hóp útlendinga (þ.e. non Svíja) sem spila með mér:

Pauli Lyytinen - saxófón
Joonas Kuusisto(aka. Jonttu) - bassa
Øyvind Hegg-Lunde - trommur

Tónleikarnir verða föstudaginn 23. maí í Ensambelsalen, Artisten.

Góða skemmtun!

föstudagur, apríl 04, 2008

Útilega

Fyrsta útilega sumarsins var óvenju snemma þetta árið. Við Lína fórum í smá ferðalag til Bologna, skoðuðum borgina og tjölduðum. Á leiðinni til baka fórum við til Rimini og löbbuðum um strandlengjuna sem er með stórum hótelum svo langt sem augað sér. Ekki hægt að kvarta yfir veðri þar sem var rúmur 20 stiga hiti og sól allan tíman.

Kíkjið endilega á myspace síðuna mína. Þar er að finna nokkrar upptökur, þar á meðal glænýtt lag með dúet okkar Línu tekið upp í gær.

þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Svíþjóð hér kem ég!

Á morgun fer í ég í heimsókn til Svíþjóðar í fyrsta skipti eftir að ég kom til Ítalíu. Mikið tilhlökkunarefni.

Þar er auðvitað Lína sem mig hlakkar mig til að sjá. Er þetta lengsta tímabil sem við höfum verið fjarri hvort öðru. Hefur samt gengið vonum framar og ekki hægt að segja annað en að við séum bara nokkuð góð í þessu.

Í Gautaborg einnig mikið af góðu fólki og góðum vinum sem mig hlakkar til að hitta.
Einnig kem ég til með að vinna með nýju bandi sem samanstendur af norska trommuleikaranum Öyvind og svissneska bassaleikaranum Kasper. Stendur til að æfa nýtt efni sem þeir félagar hafa verið að undirbúa og svo verður keyrt á tónleikaferð í Sviss næstkomandi september.

mánudagur, febrúar 11, 2008

Úr eldhúsinu

Hef verið að prófa mig dálítið áfram með eldamennsku að ítölskum hætti.

Uppáhaldsrétturinn þessa dagana:

Þunnsneitt nautakjöt með Balsam ediki.

Kjötið er léttsteikt á pönnu, bætt við balsam ediki, feskri rósmarín og hvítlauk.
Balsam edikinu er helt yfir kjötið áður en það er borið fram og það loks saltað og piprað eftir smekk.

Þessi dýrendis réttur er ekki óætari en það að hann hefur verið í matin á mínu heimili þrjá daga í röð. Ágætis Atkins kúr ef það væri ekki fyrir allt pastað.

Að ítöslkum hætti þá er byrjað á salatinu sem forrétti. Til að fullkomna salatið er góð dressing sem er blanda af ólífu olíu, balsam ediki og hunangi. Því á eftir fylgir svo pasta með hökkuðum tómötum og loks kjötið sem annar réttur.

Að því loknu má svo ekki gleyma að fullkomna máltíðina með "dolce" og bolla af espresso.


Bara svona smá innsýn inn í daglegt líf okkar Ítala.

Ciao...

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Lífið á Ítalíu!

Verð að viðurkenna að mikil bloggleti hefur verið í gangi. Það er eins gott að ég skrifi eina færslu snarlega svo þetta deyi nú ekki algjörlega út.

Fyrst má nefna það að síðustu viku hef ég fengið tvær góðar heimsóknir. Fyrst kom Tryggvi og svo kom Pauli. Þetta var gott tækifæri til að prófa nokkra veitingastaði, fara út á lífið og taka túristapakkann í Perugia. Óhætt að segja að hvorki ég né mínir gestir hafi verið fyrir vonbrigðum.
Frábær matur og vín og margt að sjá. Má þar nefna minjar frá Etrúskum sem er frá því fyrir Krist, minjar frá Rómverjum og byggingar frá miðöldum sem eru í meirihluta í miðbæ Perugia.

Fyrstu þrír mánuðirnir hafa farið í að læra ítölskuna. Ég ákvað að taka þetta föstum tökum í byrjun og tók tvo mánuði í ítölskunámskeið. Ekki hefur gefist tími fyrir margt annað en núna hef ég lagt niður enskuna hér og get spjallað þokkalega um daginn og veginn á ítölsku. Til að lyfta mér upp horfi ég gjarnan á ítalskar bíómyndir.

Svo er það stefnan sem í hef tekið í tónlistarnáminu hér en ég ætla að fara betur út í það síðar...

þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg jól í útlöndum

Er búin að hafa það ótrúlega gott síðustu daga hjá systur minni og fjölskyldu í Lúxemburg ásamt foreldrum mínum og Línu.

Hér er ótrúlega jólalegt. Kalt, stillt og þakið hvítri fönn. Gaman að hitta alla. Frændsystkin mín hafa stækkað mikið frá því fyrir rúmu ári síðan þegar ég hitti þau síðast.
Alma, 5 ára frænka mín, kallar mig ennþá Sigga sæta og stundum Sigga trúð eftir að ég leyfði henni að greiða hárinu mínu þannig að það stóð beint upp í loft. Hún hló mikið af mér enda sérstaklega glaðlegur krakki sem alltaf er brosandi og hlæjandi.
Það var gaman að fylgjast með Tómasi litla frænda mínum opna pakkana með stórt bros á vör.
Emelía hefur líka fullorðnast mikið. Alltaf gaman að spjalla við hana. Hún kom mér inn í facebook og ég hjálpaði henni að setja upp tónlistarforritið Reason.

Á morgun fer ég aftur til Ítalíu og verð nokkra daga ásamt Línu í Torino hjá systur hennar og fjölskyldu.

föstudagur, nóvember 30, 2007

I dag er eg tuttugu og sjo ara gamall. Eldri og vitrari en i gaer.

I gaer var prof i itolskunaminu. Gekk mjog vel og i januar aetla eg ad halda afram og taka einn manud i vidbot. Vaeri gaman ad halda afram med sama bekk i desember en nu verd eg ad gefa mer meiri tima fyrir tonslistarnamid.

I morgun var sidasti timinn og eg maetti med Coca Cola og Croissant (it. cornetto) og helt sma afmaelisveislu med bekknum.

Liina kom i heimsokn i november og var hja mer i tvaer vikur en thurfti ad fara aftur til Svithjodar fyrir viku sidan. Thad er tomlegra i kotinu an hennar og a afmaelisdeginum sakna eg hennar og vina minna.

En a morgun er eg bodin i mat heima hja vini minum Saiful sem er fra Bangladesh. Thar verdur matur med fjolskyldu hans her, thad er brodir hans, eiginkona brodur hans og barn.

föstudagur, nóvember 16, 2007

Università per Stranieri!

Fyrir tveimur vikum byrjadi eg i itolskunami i haskolanum. Stifur pakki! Timasokn 20 stundir a viku + heimanam. Farid er hratt yfir efnid thannig ad madur er daudthreyttur eftir daginn. Thratt fyrir thad er mjog gaman ad laera itolsku. Er lika mjog anaegdur med kennarana sem eru tvaer glaesilegar italskar konur a midjum aldri. Alltaf serlega elegant til fara, i haum stigvelum, pilsi og med stora eyrnalokka. Eldhressar, tala hatt og hlaeja mikid.

Nemendur i hopnum eru hedan og thadan. Laeknanemi fra Pollandi, nokkrir Afganar, nunna fra Indlandi, Kinverjar, Japanir. Hress kona a midjum aldri fra Washington sem hefur gaman af thvi ad spjalla. Einnig folk fra Brasilu, Afriku, Israel, Palestinu, Bangladesh og Astraliu. Skemmtilegt og ahugavert folk. Margir i hopnum eru duglegir ad vinna heima. Verda ad laera itolsku til ad geta sott um nam i haskolanum.

sunnudagur, nóvember 04, 2007

Velkomin til Perugia

Mánudagur:

Lagði af stað 09.30 frá Bremen í Norður-þýskalandi til Basel í Sviss. Eftir nokkra þurra daga var hellirigning þegar ég lagði í hann. Bílinn minn stóð sig vel og ferðin gekk hratt fyrir sig á hraðbrautinni í gegnum þýskaland. Var mættur á áfangastað 06.30. 750 km. eknir og leiðin hálfnuð.

Þriðjudagur:

Efir nokkra tíma svefn lagði af stað frá Basel kl. 04.30 til að sleppa við morgunumferðina í gegnum alpana. Umferðin gekk hratt fyrir sig í Sviss. Þegar ég kom yfir landamærin til Ítalíu og nálgaðist Milano versnuðu málin. Sat fastur á hraðbrautinni í kringum Milano í tvo og hálfan tíma. Þegar ég nálgaðist Flórens var þvílík rigning og mikil umferð á mjórri hraðbraut í fjöllunum. Var dauðþreyttur þegar ég mætti til Perugia kl. 18.00 eftir rúmlega þrettán tíma akstur. Ennþá þvílík rigning og þrumuveður í þokkabót. Umferðin algjörlega biluð á þröngum götum, endalausar brekkur og einstefnu götur. Leið og ég hægði á mér til að lesa á skilti var flautað á mig. Stoppaði við verslun til að spyrja til vegar. Hitti gjörsamlega engan sem talaði ensku. Var orðin rennandi blautur og ringlaður af umferðinni. Var með aleiguna í bílnum svo ég keyrði um í góða stund til að leita af hóteli með bílageymslu. Fann það að lokum svo þessi langi dagur var á enda.

Miðvikudagur:

Farið að stytta upp. Var komin í sambandi við einn íbúðareigandi og fór að skoða íbúðina. Hún var algjör vonbrigði. Leit vel út en var í kjallara með einum litlum glugga sem var þar að auki með dökku gleri. Held að ég yrði bilaður í íbúð þar sem ég sæi ekki út. Fór strax að leita að annari. Labbaði inn á íbúðarmiðlun fyrir stúdenta. Þau sýndu mér íbúð með frábæru útsýni. Hún var í dýrari kantinum svo ég bar mig illa og tókst að prútta verðið niður um 100 evrur.

Fimmtudagur:

Búin að flytja allt dótið inn. Mikill léttir að vera komin með allt dótið á öruggan stað og búin að leggja bílnum. Gat byrjað að koma mér fyrir. Sólin skín og ég er ánægður með lífið eftir erfiða daga.

Læt fylgja með nokkrar myndir af þessu stórkostlega útsýni ur íbúðinni minni:




miðvikudagur, október 24, 2007

Road Trip!

Nú er komið að því að ég flyt til Ítalíu þar sem ég mun vera skiptinemi fram að næsta sumri í Perugia. Í gærkvöldi lagði ég af stað á eigin bíl og tók bát frá Gautaborg til Kiel í þýskalandi. Þaðan keyrði ég til Bremen þar sem ég mun dvelja næstu daga hjá Moritz, þýskum vini mínu. Ég mætti til Bremen kl. 11.30 í morgun og fór beint á æfingu með Moritz og hljómsveit. Ég mun svo spila með þeim á útskriftartónleikum Mortiz á morgun. Að sjálfsögðu er ég með þýskt númer sem ég mun nota meðan ég er í þýskalandi: +49 176 76145633.

fimmtudagur, október 04, 2007

Numero telefonico

Menn hafa verið dálítið ringlaðir yfir því hvernig hægt sé að ná í mig í síma og kvartað yfir því að ég sé búin að vera með þrjú sænsk númer og þar að auki eitt íslenskt, eitt finnskt og eitt eistneskt. Því birti ég sænska númerið mitt hér og fullyrði að þetta er eina númerið sem hægt er að ná í mig hér og nú.

+46 73 73 455 82

mánudagur, september 24, 2007

Ferð andstæða

Í gærkvöldi kom ég heim eftir tveggja vikna tónleikaferð með Laser. Það var stórkostlegt að koma heim til Línu í ró og næði eftir langt ferðalag. Eftir góðan svefn í nótt er ég að verða starfshæfur á ný.

Þetta var svo sannarlega ferð mikilla andstæða.

- Fórum frá Pietersaari (Jakobstad) sem er einn fallegasti bær í Finnlandi til Pieksämäki sem er sennilega sá ljótasti. Í þeim síðari var okkur boðið upp á gistingu á sveittu hóteli. Á sama tíma var klámráðstefna á hótelinu. Á göngum hótelsins var grænt teppi, grænir veggir og ljós sem gerði ganginn lýsandi grænan. Stripparar bregða fyrir á göngunum. Gjörsamlega súrealísk upplifun.

- Fórum á Eistneska eyju sem heitir Saarema og spiluðum í stærsta bænum þar, Kuressare. Falleg eyja og vinalegt fólk. Þegar við komum þangað mættum við hópi af ungmennum sem horfðu á okkur og flissuðu. Eftir "sound check" hringdi pródúsentinn, sem var stúlka um þrítugt, á fínasta veitingastað bæjarins til að athuga hvort hægt væri að fá heitan mat. Jújú, það var ekki málið. Við sendir þangað og þegar við mættum var þetta gömul og falleg mylla á fimm hæðum. Starfsfólkið voru þrjár ungar stúlkur sem flissuðu þegar við mættum á svæðið. Við vorum einu gestirnir á veitingahúsinu. Tónleikarnir voru í menningarhúsi staðarins sem mynti mig á félagsmiðstöð úti á landi. Stór salur með stóru sviði. Númeruð borð og frátekin borð við sviðið. Tónleikunum var vel tekið. Nokkur pirringur var í okkur vegna mikilla "tilraunamennsku" hljóðmanns staðarins. Við fengum svo gistingu á lúxus Spa Hóteli.

-Á leiðinni til baka, á miðri eyjunni geðrist svo það sem átti eftir að draga úr okkur allan kraft. Undarleg hljóð frá bílnum hans Pauli, bílinn tapar öllum krafti. Við stoppum útí vegakanti. Reykur kemur frá húddinu. Ég opna húddið og sé að eldur er á vélinni. Man ekki alveg hvað fer í gegnum huga minn næstu sekúndir en Andreas grípur allavega vatnsflösku sem við erum með í bílnum og skvettir á eldinn. Þessir síðustu dropar af vatni nægja til að slökkva eldinn. Við fastir á eyjunni með hljóðfærin okkar í kerru festa við bílinn. Ég tek upp síman og byrja að hringja til að reyna að redda málunum. Maris, pródusentinn, hringir út um allan bæ til að reyna að fá bifvélavirkja á staðinn. Það er ekki hægt og vélin sennilega ónýt. Maris nær sambandi við rútu sem er á leiðinni til Tallinn og er stutt frá okkur. Við þurfum að taka ákvörðun og það fljótt. Rútan kemur og stoppar fyrir okkur fjærri nokkurri stoppistöð. Bílstjóranum líst ekki á blikunu þegar hann sér allt dótið. Við reynum. Drífum dótið inn í rútu og rétt tekst að koma kontrabassanum inn við útgang í miðri rútunni. Þetta hefst en við verðum að skilja bílinn og kerruna eftir á eyjunni.

Framhald síðar...

sunnudagur, september 02, 2007

Laser á ferð um Eystrasaltið

11th: FINLAND, Helsinki, Milenka
12th: FINLAND, Turku, Monk Jazzklubi
13th: FINLAND, Pietarsaari, Jazzklubi
15th: FINLAND, Pieksämäki, Poleemi
18th: FINLAND, Jyväskylä, Jazz Bar
19th: ESTONIA, Kuressaare, Jazz del Mar
20th: ESTONIA, Tallinn, Kuku Klubi
21st: LATVIA, Riga, Sunny Terrace
22nd: ESTONIA, Tallinn, Teater NO99

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

Nokkrar myndir

Bátsferð frá Tartu til Peipsi



Daðra við Línu í sólinni




Illa brunninn eftir daginn




Hvít strönd við Eystrarsaltið.




Lína glímir við að búa til Mojito




laugardagur, júlí 21, 2007

Eistland!

Nú er ég búin að vera í Eislandi í rúma viku og kann bara mjög vel við mig. Mest er ég búin að vera í litlum 20 þúsund manna bæ sem heitir Viljandi og er heimabær Línu, auk þess sem ég er búin að flakka dálítið um. Það er mjög afslöppuð stemmning heima hjá Línu. Ásamt foreldrum hennar er systir hennar stödd þar núna og er ný búin að eignast barn. Ég get svosem ekki átt mikil samskipti við foreldra hennar því hvorugt þeirra talar ensku. Ég bara kinka kolli og brosi sem virkar svosem ágætlega, þau brosa allavega á móti. Lína segir að það koma ekki að sök því þau tali ekki svo mikið hvort sem er.

Fyrir Íslending er allt svakalega ódýrt hér, sérstaklega úti á landi. Enda er ekki sami standard hér og á íslandi. Laun eru lág og fólk virðist ekki leyfa sér mikið. Ég má þó til með að nefna að þetta er internetvæddasta land sem ég hef komið til. Ekki bara frítt net á öllum kaffihúsum heldur líka á bensínstöðvum.

Viljandi er fallegur bær með mikið af gömlum timburhúsum en mörg þeirra eru ansi illa farin. Maður er ekki vanur að sjá svona illa farin hús á íslandi. Fólk hefur svosem nóg í sig og á en það er kannski ekki að leyfa sér að fara út að borða, ferðast til útlanda eða að kaupa nýjustu raftækin á heimili sín.

Systur Línu er mjög hressar og hafa mikin áhuga á að vita hitt þetta um Ísland og reyndar fólk almennt sem ég hitti. Ég vakti mikla lukku með því að kippa með mér flösku af íslensku brennivíni og hákarl. Ekki það að fólki hafi þótt hákarlinn sérstaklega góður en því fannst allavega gaman að prófa. Annika, systir Lína sem býr í Viljandi ásamt fjölskundi sinni er búin að taka okkur Línu með í hinar ýmsu ferðir, m.a. í bátsferð frá Tartu til Peipsi sem er stærsta vatn Eistlands og það sjötta stærsta í Evrópu. Ferðin var frá morgni til kvölds í blíðskapar veðri og varð til þess að ég brann all illilega.

Best að láta þessi skrif duga í bili. Vonandi get ég látið einhverjar myndir fylgja með næst...