þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Nóg að gera!!!

Ég hef nú ekki verið nógu duglegru að blogga undanfarna daga þó það hafi verið nóg að gerast. Á laugardaginn héldum við í Autoreverse okkar lokatónleika. Þið þurfið ekki að örvænta því við munum líklega spila tvenna tónleika á Rósenberg um jólin. Við vorum alveg í skýjunum eftir tónleikana því staðurinn var troðfullur og stemmningin frábær. Að þessu sinni vildum við spila langa tónleika og tókum því þrjú sett. Við byrjuðum að spila kl. 23.00 og voru hættir kl. 02.40! Nokkuð góður árangur það. Þetta var allavega ótrúlega gaman!
Í dag fór ég svo með tíu kassa, sjónvarp, tvo svarta ruslapoka og eitt stykki amerískt rúm á Vöruhótelið. Þessi varningur fer svo í siglingu á morgun og mun enda á Tyghusvägen 8, Läg 101, 415 27 Gautaborg sem verður nýja heimili okkar Söndru. Endilega lítið við eftir 18. ágúst. Trevlig resa!

Engin ummæli: