mánudagur, ágúst 29, 2005

Varúð!!!

Vinsamlegast bendið mér á það ef þig takið eftir því að ég sé farinn að sökkva of djúpt í sænskan kúltúr.

Ef þið takið eftir eitthvað af eftirfarandi einkennum hafið þið skriflegt leyfi til að slá mig í rot:

1. Ef þið takið eftir því að ég sé farinn raka á mér lappirnar.
2. Ef þið takið eftir því að ég sé farinn að raka á mér bringuna.
3. Ef ég er skyndilega kominn með ljóst hár.
4. Ef ég er orðin massaður og geng í þröngum bleikum stuttermabol ( Ath. uppfylla þarf bæði skilyrði)
5. Ef efri vörin á mér virðist bólgin en er í rauninni full af skít.
6. Ef ég er farin að nota glæran maskara og meik.

5 ummæli:

geimVEIRA sagði...

Þessi listi er svo magnaður að því er ekki að neita að það yrði allt of fyndið að sjá þig svona til þess að maður gæti gripið til ofbeldisfullra aðgerða. Ég áskil mér rétt til þess að leggjast í gólfið og væla úr hlátri.

Damn að kunna ekki meira í Photoshop... heyrðu.. þú mætir bara svona um jólin ok?

Nafnlaus sagði...

Varúð!!

þú ert fariNN að nálgast það að raka á þér lappirnar, ganga í bleiku og mála þig þegar þú ert fariNN að tala um sjálfan þig í kvenkyni....

;)
Sandres

eva sagði...

Bwahahahaha! Ég sé þig svo vel fyrir mér svona útlítandi. Ég lofa að gera mér ferð þarna út í eigin persónu og SÆKJA þig ef ég sé að stefnir í eitthvað þessu líkt :)

Nafnlaus sagði...

Hæ, hlakka til að sjá fleiri myndir! Þú verður líka að setja inn myndir svo við getum gengið úr skugga um að þú lítir ekki svona út nú þegar!

Siggidóri sagði...

já .. er metrósexúalið að gera góða hluti í veldi Svía?