mánudagur, ágúst 22, 2005

Fyrsti skóladagurinn!

Í dag var fysti skóladagurinn. Hann fór í ýmsar kynningar, söng og dans. Alveg einstakt sænskt hópefli. Svona verður vikan að mestu leiti og endar síðan á fimmtudaginn með allsherjar partíi. Í dag var skipt niður í hópa og á hver að vera með einhversskonar skemmtiatriði á fimmtudaginn. Ég fékk verkefnið Kent goes folkmusic. Fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því með fiðluleikurum, víóluleikurum, söngvurum og einum rafmagnsgítarleikara. Það er semsagt séð til þess að koma manni inn í pakkann hér í Svíþjóð. Ég fékk einnig yfirlit yfir kúrsa annarinnar og líst stórvel á. Aðaluppistaðan er samspil sem er mjög jákvætt. Sé ekki betur en að ég sé í 54 samspilstímum hjá hinum og þessum kennurum. Aðrir kúrsar eru praktik, konstnärlig fördjupning (listræn dýpkun?), teori, multimedia, ergonomi (einhverskonar teygjur og beygjur) og datorkunskap( tölvu eitthvað). Stórstjarnan Anders Jormin er deildastjóri á minni línu og aðalkennari. Hann kennir mér fullt af samspili og kúrsana praktik og konstnärlig fordjupning.
Ég spjallaði einnig við nokkra skólafélaga og leist bara vel á þá. Við Sandra fórum með nokkrum af þeim í pizzu og hikuðum ekki við að tala við þá á sænsku. Allar sænsku myndirnar sem ég horfði á hafa sannarlega skilað sínu.

Mér líst allavega rosalega vel á það sem komið er. Gleymið svo ekki að kíkja á myndir dagsins.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gaman að heyra og sjá að þig plumið ykkur þarna í svíaríki. Ef þið hafið einhverjar spurningar hikið ekki við að droppa línu á mig...

Nafnlaus sagði...

Gott að vita að þið hafið það gott. Dáldið fyndið að vera í kúrsunum praktik og teoriu, það dekkar meira og minna allt hefði ég haldið..

Tékkið á þessu ef linkurinn virkar, annars ekki..

http://www.collegehumor.com/movies/159572/

Eiki