Annað kvöld heldur hljómsveitin Malus tónleika á Kaffi Rósenberg. Eins og fyrri daginn verða á daskrá pop- og jazzlög úr ýmsum áttum. Í hljómsveitinni eru ásamt undirrituðum Ása Bjarnadóttir söngkona, Sigurdór Guðmundsson bassaleikari og Birgir Baldursson trommari.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er miðaverð 700 kr.

Svo vil ég minna fólk á að á laugardaginn munu Gautaborgarfarar halda kveðjupartí á Stúdentakjallaranum. Gamanið hefst upp úr 21.00 og munu Autoreverse, Moskvitch og fleiri taka lagið...
2 ummæli:
Þið eigið eftir að meika það í Svíþjó. Góða ferð...
Takk fyrir það!
Skrifa ummæli